- Advertisement -

25 milljónir, það er einn sæmilegur ráðherrabíll

„Sem rokktónlistarmaður þá hef ég kynnst allt of mörgu fólki sem er að glíma við þunglyndi, depurð og kvíða, ég veit ekki alveg hvað það er í þessari senu en það er svo rosalega mörgum sem líður illa.“

Birgir Jónsson skrifar: Það er auðvitað frábært að ráðamenn séu að byrja að grípa til einhverra aðgerða í þessu mikilvæga máli, þó að mér finnist þetta vera of lítið og of seint, eiginlega bara grátlega fyndið.

Eins og staðan er á Íslandi í dag þá er auðveldara að fá þjónustu á bílinn þinn en að fá aðstoð á sviði geðhjálpar eða sálfræðiþjónustu. Við vitum hvernig staðan er á geðdeildinni, þar sem starfsfólk er undir „geðveiku“ álagi við að gera sitt besta við að redda einhverju en samt er fárveiku fólki hent út á götu í sárri neyð vegna fjárskorts, og svo er lokað á sumrin. Ef þú býrð út á landi þá ertu fokkd, sorrý.

Sem rokktónlistarmaður þá hef ég kynnst allt of mörgu fólki sem er að glíma við þunglyndi, depurð og kvíða, ég veit ekki alveg hvað það er í þessari senu en það er svo rosalega mörgum sem líður illa. Næmt og fallegt fólk sem er bara of brothætt fyrir þetta harða þjóðfélag og álagið sem því fylgir. Kannski er ekkert fleirum sem líður illa þar en annarsstaðar en þetta er allavega það sem ég þekki.

Ég og vinir mínir höfum þurft að horfa á eftir svo grátlega mörgu flottu fólki taka sitt eigið líf. Hæfileikaríkt fólk, ungt fólk, sem hefði ekki gert neitt annað en að auðga samfélagið okkar, en samt getur svarti hundurinn talið þeim trú um að heimurinn sé bettur settur án þeirra. Sem er alrangt. Alveg ótrúlega sorglega rangt. Ég ætla ekki einu sinni að reyna að telja saman hvað DIMMA er búin að spila í mörgum jarðaförum eða koma með einum eða öðrum hætti að slíkum athöfnum eftir sjálfsvíg ungs fólks eða krakka sem látist hafa úr ofneyslu, sem er eiginlega það sama. Þetta er agalegt helvíti. Faraldur.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Birgir Jónsson er trommari Dimmu.

Við sem þokkalega þróað samfélag getum bara ekki leyft okkur að láta þessi mál mæta svona afgangi. Fólk sem er í sjálfsvígshugleiðingum, í mikill neyslu eða er að eiga með öðrum hætti við geðsjúkdóma verður að geta fengið bráðaþjónustu og það verða að vera úrræði. Þetta fólk getur ekkert alltaf borgað 15-20þ fyrir sálfræðitímann sem er laus eftir dúk og disk, sérstaklega ekki ungt fólk.

Það er auðvelt að leiða þessi mál hjá sér vegna þess að maður er kannski svo heppinn að vera ekki að eiga við þetta vandamál í sínu daglega lífi einmitt núna. En í ísköldum raunveruleikanum þá má einnig benda á þá hagfræðilegu staðreynd að við sem örþjóð höfum ekki efni á að missa allt þetta flotta fólk úr hagkerfinu. Við getum ekki misst tugi einstaklinga á hverju ári sem hefðu haldið áfram með sitt líf og orðið góðir og gildir efnahagslegir þegnar. Borgað skatta, keypt drasl, tekið lán, eignast börn, greitt í lífeyrissjóði og yfirhöfuð staðið undir og tekið þátt í samneyslunni. Hvert líf sem við töpum úr þessari jöfnu er svo miklu miklu verðmætara en þær upphæðir sem ráðamenn telja að þeir séu að setja í þessi mál til að bregðast við einhverju. Þetta lítur pínu út eins og málamyndagjörningur þar sem menn eru að slá sig til riddara án innistæðu. Ég efast ekkert um að þetta góða fólk telur sig vera að gera gott og hefur margar skýringar fyrir því að ekki er hægt að gera meira. En þetta er bara ekki nógu gott. Lélegt.

Kannski er lausnin að færa geðheilbrigðismálin frá Heilbrigðisráðuneytinu og inn í Fjármálaráðuneytið, þar á bæ ættu menn að skilja að það er bara góður bissness að passa það að fólk sé ekki að kála sér hægri vinstri, því það er miklu betra að eyða smá pening, fjárfesta, í að halda þeim á lífi, svona hagfræðilega séð altso. Kannski er það eitthvað dæmi sem fólk getur sett uppí Excel skjalið sitt og skilið sem skynsamlega peningastjórnun frekar en eitthvað svona mjúkt aumingjavæl um hvað fólki líður illa í sálinni.
Kannski ætti sjálfsvígstíðni að koma fram á blaðamannafundum Seðlabanka, svona eins og stýrivextir. Þetta er leki úr hagkerfinu sem þar að stöðva.
Ekki bara harmleikur fyrir ástvini þeirra sem falla heldur efnahagslegur harmleikur fyrir okkur öll. Er betra að skilja þessa krísu svona?

25 milljónir. Þú færð ekki einu sinni tveggja herbergja íbúð fyrir það. Þetta er kannski það sem einn einstaklingur myndi greiða umfram virði íbúðarinnar sinnar í verðtryggða láninu sínu, þ.e. ef hann hefði lifað. Það er einn sæmilegur ráðherrabíll. Smápeningar. Hlægilegt klink í stóru myndinni.

Þessi frétt ætti frekar að spyrja hvort þetta lið sé að grínast, er þetta í alvöru allt sem þið eruð með?


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: