- Advertisement -

60 ára KitchenAid fékk nýtt útlit

Sveinn Þór tók 60 ára KitchenAid vél í gegn.

Sveinn Þór Sveinsson nemi í bílamálun fékk rúmlega 60 ára gamla KitchenAid hrærivél frá tengdaömmu sinni og gaf henni nýtt líf. Vélin var orðin vel gul af elli og tók sinn tíma að þrifa fitu og óhreinindi í burtu.  Vélin var sprautuð svört með gull og silfur sanseringu.  Glæsileg útkoma fyrir gömlu KitchenAid vélina.

Vélin farin að láta á sjá.

 

Vélin tekin öll í sundur.

 

Þrif og undirbúningur fyrir sprautun.

Fullt af gulli og silfri í sanseringunni.

Stór glæsileg og falleg útkoma hjá Sveini.

 

 


Auglýsing