- Advertisement -

Aldrei færri fæðingar á Íslandi

Aldrei, frá því mælingar hófust árið 1853, hafa færri börn fæðst á Íslandi en í fyrra, þegar miðað er við frjósemi kvenna.

Árið 2016 fæddust 4.034 börn á Íslandi, sem er fækkun frá árinu 2015 þegar 4.129 börn fæddust. Alls fæddust 2.042 drengir og 1.992 stúlkur, en það jafngildir 1.025 drengjum á móti hverjum 1.000 stúlkum.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands.

Frjósemi kvenna á Íslandi er minna en nokkru sinni fyrr og fæddust færri börn í fyrra en árið á undan. Meðalaldur frumbyrja heldur áfram að hækka og var 27,7 ár í fyrra. Algengast er á Íslandi  að barn fæðist utan hjónabands miðað við önnur lönd í Evrópu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Helsti mælikvarði á frjósemi er fjöldi lifandi fæddra barna á ævi hverrar konu. Yfirleitt er miðað við að frjósemi þurfi að vera um 2,1 barn til þess að viðhalda mannfjöldanum til lengri tíma litið. Árið 2016 var frjósemi íslenskra kvenna 1,75 börn á ævi hverrar konu og hefur hún aldrei farið lægra frá því að mælingar hófust árið 1853. Árið 2015 var frjósemi 1,81 en það er næstlægsta frjósemi sem mælst hefur hér á landi. Undanfarinn áratug hefur frjósemi á Íslandi verið rétt um tvö börn á ævi hverrar konu.

Sjá nánar hér.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: