- Advertisement -

Alþingi kórónar eigið ofbeldi

„Treystið þið ykkur hér inni til að lifa af 33 þúsund krónumr á mánuði? Ég geri það ekki. Það er vonlaust.“

 Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, lét til sín taka á Alþingi í dag. Hann kom í ræðustól þegar þingmenn ræddu um jöfnuð.

„Mér sárnar rosalega tilhugsunin um það sem ég var að uppgötva. Fyrir ekki svo löngu síðan var króna á móti krónu skerðingin 30–40 þúsund krónur. Króna á móti krónu skerðingin í dag er 100 þúsund krónur. Einstaklingur sem hæstvirtur fjármálaráðherra hældi sér af að væri kominn í 300 þúsund krónur býr einn, er veikur, öryrki, fær jú 300 þúsund krónur en eftir skatta og skerðingar er hann kominn niður í 250 þúsund krónur. Ef þessi einstaklingur fær 100 þúsund krónur frá lífeyrissjóðnum fær hann 0. Það er þurrkað út. Ef hann fær ekkert frá lífeyrissjóði og á ekki rétt þar og ætlar að fara að vinna, vinnur sér inn 100 þúsundkall fær hann 0. Hvers lags ofbeldi er þetta? Hvernig í ósköpunum látum við þetta viðgangast?“

Hann gaf í. „Síðan kórónum við ofbeldið þegar einstaklingar fá núna skerðingar frá Tryggingastofnun ríkisins eftir skerðingardaginn mikla, 88 prósent af útborgunum frá Tryggingastofnun eru rangar, 12 prósent eru réttar. Svo senda þeir út á fólk bréf um að það eigi að endurgreiða 48 þúsund krónur en það fær frá Tryggingastofnun ríkisins 33 þúsund krónur vegna þess að það er búið að endurmeta það. Viðkomandi fær ekki lengur endurhæfingarstyrk, hann fær 50 prósent styrk og á að lifa af 33 þúsund krónur. Treystið þið ykkur hér inni til að lifa af 33 þúsund krónumr á mánuði? Ég geri það ekki. Það er vonlaust.

Tölum um Gini-stuðulinn. 750 þúsund krónur eru meðallaun í landinu í dag. Helmingur af því ætti að vera í fátækt en það eru 30 prósent, 250 þúsundkall sem er verið að borga út. Sárafátækt. Eigum við að vera stolt af því? Nei.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: