- Advertisement -

Öryrkjar leiðrétta Bjarna fjármálaráðherra

„Nú getum við öll tekið undir hversu gleðilegt það væri ef ráðherrann færi rétt með staðreyndir.“

„Fjármálaráðherra fullyrðir að bætur til lífeyrisþega hafi hækkað um 1,1 milljón króna á ári frá árinu 2010. Það væri hækkun sem næmi hátt í 92 þúsundum á mánuði, á hvern mann í hverjum mánuði undanfarin átta ár. Erfitt er að koma þessum upplýsingum heim og saman við þann veruleika sem öryrkjar búa við.“

Á heimasíðu Öryrkjabandalagsins er birtur kafli úr þingræðu ráðherrans:

„Hvað þýðir þetta í auknum bótarétti fyrir hvern og einn bótaþega? Þetta þýðir að bæturnar hafa hækkað fyrir hvern og einn bótaþega um 1,1 milljón á ári. Hvers vegna stendur þá þessi hv. þingmaður hér og heldur því fullum fetum fram að þessi hópur hafi algerlega setið eftir? Tölurnar sýna allt annað.“

Öryrkjar fylgja orðum ráðherrans eftir: „Nú getum við öll tekið undir hversu gleðilegt það væri ef ráðherrann færi rétt með staðreyndir. Þá væri hver og einn örorkulífeyrisþegi með lauslega áætlað um 700 þúsund krónur á mánuði til grunnframfærslu. Það segir sig sjálft að margir yrðu ánægðir með að búa í þessari veröld fjármálaráðherrans.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Nánar á obi.is.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: