- Advertisement -

Þessi eru kjör þeirra verst settu

Oddný: „Miðað við ummæli forsætisráðherra og fjármálaráðherra um gífurlega hækkun til öryrkja á þeirra vakt gæti fólk haldið að greiðslunrar væru mannsæmandi, en svo er ekki.“

Oddný Harðardóttir skrifar: Prófaði reiknivél á heimasíðu Tryggingastofnunar. Fengi útborgaðar 204.352 kr. Miðað við ummæli forsætisráðherra og fjármálaráðherra um gífurlega hækkun til öryrkja á þeirra vakt gæti fólk haldið að greiðslurnar væru mannsæmandi, en svo er ekki. Hér er niðurstaðan:
Örorkulífeyrir 44.866
Aldurstengd örorkuuppbót 6.730
Tekjutrygging 143.676
Framfærsluuppbót 43.322
Samtals: 238.594
Frádreginn skattur (1. skattþrep)
– 88.137
Persónuafsláttur (nýting skattkorts 100 %)
53.895
Samtals frá TR eftir skatt:
204.352
Ég sjálf væri ekki á þessum kjörum en þeir sem eru verst settir eru á þeim og það er fyrir þá sem við eigum að krefjast betri kjara.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: