- Advertisement -

Vilja ekki lækka skólamáltíðir

- með því að gæta ekki að jafnræði er verið að brjóta ákvæði í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, segir Kolbrún Baldursdóttir. Verð skólamáltíð mun lækka, árið 2021.

Kolbrún Baldursdóttir vill að ódýrara verði að borða í skólunum. Meirihlutinn segir verðið lækka árið 2021.

Kolbrún Baldursdóttir, Flokki fólksins, lagði til að skólamáltíðir í Reykjavík yrðu lækkaðar um þriðjung.

Meirihlutinn sagði nei og felldi tillöguna. Meðal annars með þeim rökum: „Gjaldskrár Reykjavíkurborgar eru þegar lágar samanborið við nágrannasveitarfélög og stefnir meirihlutinn á að lækka þær enn frekar, samanber þau fyrirheit samstarfssáttmálans að barnafjölskyldur skuli mest greiða fæðisgjöld fyrir tvö börn, þvert á skólastig frá árinu 2021. Unnið er í samræmi við þá áætlun.“

Kolbrún sagði að í svari frá skólaráðinu að lækka skólamáltíðir yrði um 361 milljón.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Kolbrún spurði hvort borgarmeirihlutinn sjái virkilega ofsjónum yfir peningum til að metta maga barna í skólum borgarinnar. Hún sagði ekki liggja fyrir upplýsingar um hvers vegna börn borða ekki í skólunum.

„Við vitum að það hafa ekki allir foreldrar ráð á að leyfa barni sínu að vera í mat í skólanum. Með því að gæta ekki að jafnræði er verið að brjóta ákvæði í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Það hlýtur að vera vilji okkar allra að ekkert barn sé svangt í skólanum. Borgarfulltrúi Flokks fólksins vill minna á að nú þegar er fordæmi fyrir lækkun skólamáltíðar í öðrum sveitarfélögum og ætti Reykjavík ekki að láta sitt eftir liggja.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: