- Advertisement -

ASÍ minnist ekki á Vilhjálm

„Þetta er í raun langstærsta mál sem Verkalýðsfélag Akraness hefur farið með fyrir dómstóla en það endurspeglast af því að fordæmisgildi dómsins getur verið gríðarlegt og jafnvel náð til allt að 200 starfsmanna sem hafa starfað á hvalvertíðum á árunum 2009, 2010, 2013 og 2015. Má því áætla ef fordæmisgildið haldi alla leið fyrir þá sem hafa starfað á þessum vertíðum að heildarupphæð sem Hvalur hf. þyrfti að greiða starfsmönum næmi á þriðja hundrað milljónir,“ segir Vilhjálmur Birgisson.

Þetta er bein tilvitnun í frétt Miðjunnar um sigur launþega í dómsmáli, með Verkalýðsfélagið á Akranesi, sem bakhjarl. ASÍ segir frá dóminum en gætir þess sérstaklega, að því er virðist, að sneiða fram hjá Verkalýðsfélagi Akraness og formanni þess, Vilhjálmi Birgissyni.

Í málinu tapaði  Hvalur hf., félag Kristjáns Loftssonar, merku dómsmáli sem getur haft mikil áhrif. ASÍ minnist ekkert á það.

Hér er frétt ASÍ:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Hæstiréttur – laun skulu greidd fyrir vikulega frídaga sem ekki eru virtir

„Samkvæmt kjarasamningum og lögum skal launafólk fá einn frídag á viku í beinu framhaldi af daglegri lágmarkshvíld, þ.e. 35 klst. samfelld hvíld einu sinni í viku. Engin sérstök ákvæði eru í kjarasamningum eða lögum um hvernig við skuli brugðist ef þessi ákvæði eru ekki virt, ef frá eru talin sektarákvæði. Hæstiréttur staðfesti þann 14.6 sl. með dómi í máli nr. 594/2017 að atvinnurekendur bera ábyrgð á því að vinna sé skipulögð þannig að vikulegur frídagur sé virtur. Hæstiréttur segir jafnframt að enda þótt ekki sé gert ráð fyrir að umræddir frídagar séu launaðir sé ljóst að atvinnurekendur beri ábyrgð á að starfsmenn fái þá lágmarkshvíld sem í kjarasamningum greinir og ef atvinnurekendur fari ekki að kjarasamningum að þessu leyti eignist starfsmenn rétt til dagvinnulauna vegna þeirra vikulegu frídaga sem þeir ekki fá.

Ekki hefur verið fjallað um það fyrir dómi hvort frávik frá reglunni um 48 stunda vinnuviku að jafnaði skapi sambærilegan rétt en með sömu rökum og beitt var í Hrd. 594/2017 kann vel að vera að svo sé enda skylda atvinnurekanda jafn mikil í þessu efni eins og varðar vikulega og daglega hvíld.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: