- Advertisement -

Brotlegar herþotur yfir Reykjavík

- borgarstjóri kannast ekki við að leyfi hafi verið gefið fyrir flugi herflugvéla yfir Reykjavík. Segir flugið brot á samningum.

Dagur B. Eggertsson.
„Ítrekað lágflug svo hávaðasamra véla einsog átti sér stað í dag yfir íbúðabyggð og friðlandi fugla á viðkvæmasta varptíma er jafnframt fáránlegt og án efa brot á starfsleyfi flugvallarins.“

„Það hefur verið deilt um flest á Reykjavíkurflugvelli nema það að herflugvélar eiga þar ekki heima nema sem þátttakendur í björgunartengdum verkefnum eða öðrum sérstökum ástæðum,“ skrifar borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson.

„Herflugvélar á Reykjavíkurflugvelli eru þvert á móti skýrt brot á samningi ríkis og Reykjavíkurborgar frá 2013 sem tilgreinir einmitt þetta. Hæstiréttur hefur dæmt að þessi samningur sé í fullu gildi. Ítrekað lágflug svo hávaðasamra véla einsog átti sér stað í dag yfir íbúðabyggð og friðlandi fugla á viðkvæmasta varptíma er jafnframt fáránlegt og án efa brot á starfsleyfi flugvallarins.“

Dagur segir annað vihorf varðandi skemmtanir eða sýningar. „Borgaryfirvöld hafa aldrei gert athugasemdir við að haldnir séu fjölskyldudagur flugsins á vellinum. Og skrautflug farþegavéla flugfélaga í tilefni afmælis getur alveg átt við og verið skemmtileg – enda eðli málsins samkvæmt sérstök undantekningartilvik. Gríðarlega hávaðasamar herflugvélar í lágflugi eru annað mál. Þetta mál þarfnast skýringa.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Dagur segist hafa verið spurður hvort leyfi hafi verið gefið fyrir lágflugi herflugvélar yfir miðborginni í dag og segist ekki kannast við það.

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: