- Advertisement -

Brynjar fór öfugu megin fram úr

Segir Pírata taka þingið og framkvæmdavaldið í gíslingu með endalausu málþófi og gagnslausum fyrirspurnum. „Undir þetta taka svo helstu sóðamiðlar landsins, sem trúa sjálfir að þeir séu hlutlausir og heiðarlegir.“

„Áberandi er hópur þingmanna sem telur sig sérstakt baráttufólk fyrir bættum vinnubrögðum og aukinni virðingu alþingis. Flest eiga þau nú samt sameiginlegt að hafa varla unnið ærlegt handtak um ævina og finnst dugnaður ofmetinn, ef ekki úreltur. Í þeirri baráttu nota þau ræðustól þingsins, klædd eins og niðursetningar, og saka pólitíska andstæðinga og embættismenn ýmist um lygi, óheiðarleika, spillingu og glæpi. Á sama tíma getur það ekki einu sinni sagt satt um eigin menntun. Undir þetta taka svo helstu sóðamiðlar landsins, sem trúa sjálfir að þeir séu hlutlausir og heiðarlegir,“ skrifar Brynjar Níelsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og einn af varaforsetum Alþingis.

Fyrir fáum dögum var frétt hér um að Halldóra Mogensen, Pírati og formaður velferðarnefndar, hafi kvartað formlega vegna framgöngu Brynjars og félaga hans, Ásmundar Friðrikssonar. Sjá neðar hér á síðunni.

Brynjar heldur áfram. „Þau kenna sig við frjálslyndi en eru mestu búrókratar sem þekkjast á byggðu bóli. Þau treysta sér ekki til að heilsa með handabandi því að engar skráðar reglur eru til um hvora hendina skuli nota. Þau taka þingið og framkvæmdavaldið í gíslingu með endalausu málþófi og gagnslausum fyrirspurnum. Þau hika ekki við að setja sig í dómarasæti í málum sem þau hafa hvorki kynnt sér né hafa vit á. Dómarnir eru gjarnan mjög þungir og ekki kunna þau að biðjast afsökunar reynast þeir rangir. Þetta fólk skeytir hvorki um skömm né heiður.

Já, ég fór öfugu megin úr rúminu í morgun.“

Hér er fréttin um kvörtun Halldór Mogensen:

Halldóra kvartar formlega undan Ásmundi og Brynjari

 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: