- Advertisement -

Brynjar stóð á gati

Brynjari Níelssyni var svarafátt þegar hann talaði við gamlan félaga sinn.

Gefum Brynjari orðið:

„Gamall félagi minn, sem hefur verið meira til vinstri í tilverunni, lagði leið á lykkju sína til að segja mér að hann ætlaði að kjósa einhvern af meirihlutaflokkunum í Reykjavík. En erum við ekki sammála um að mælikvarði á góða stjórn í sveitarfélagi er hvað við fáum mikla og góða þjónustu fyrir peninginn, spurði ég. Hann hélt það nú. Af hverju er grunnþjónusta lakari í Reykjavík en nágrannasveitarfélögunum, umhirða og þrif í lamasessi nema rétt fyrir kosningar, skuldsetning borgarinnar á hvern íbúa meiri, lítið framboð á lóðum sem leiðir til hækkandi íbúðaverðs, komumst ekki milli hverfa með góðu móti og allt gerist það á sama tíma og gjöldin á borgarbúa er hærra en annars staðar?

Ekki stóð á svari hjá félaganum. Jú, það er ríksstjórnunum frá 2013 að kenna. Ég átti auðvitað ekkert svar við þessu.“

 

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: