- Advertisement -

Ég vil ekki að börnunum mínum sé kalt

- ég vinn fjörutíu stunda vinnuviku, og aðra hvora helgi og ég fæ 270 þúsund á mánuði eftir skatta.

„Launin eru svo lág að stundum borða ég sjálf bara núðlur og banana til þess að geta gefið börnunum eitthvað skárra og keypt skó og úlpur fyrir veturinn. Ég vil ekki að börnunum mínum sé kalt og þau séu óhamingjusöm og ég vil gefa þeim góðan mat, þótt ég geti ekki leyft mér að kaupa fisk og lambakjöt.

Ef þú borðar ekki hollan mat, þá veikist þú, og það kostar að verða veikur, þú missir vinnu og laun og það fer allt á hvolf heima við. Ég kom til Íslands fyrir 19 árum frá Cebu á Filippseyjum, við, ég og minn maður búum í eigin húsnæði í Breiðholti með börnin okkar sex, yngsta er fimm og elsta sautján ára. Við konurnar frá Filippseyjum sem vinnum hérna í heimaþjónustunni erum flestar mæður með börn og ég er ekki að segja að mennirnir okkar séu latir en við tökum kannski meiri ábyrgð á heimilinu og börnunum en þeir, þannig að vinnuálagið er töluvert.

Ég hef starfað í heimaþjónustunni í Furugerði í 4 ár, ég vinn fjörutíu stunda vinnuviku, og aðra hvora helgi og ég fæ 270 þúsund á mánuði eftir skatta. Það er erfitt, ég reyni að hagræða og ná endum saman. Hver mánaðamót setjumst við niður ég og maðurinn minn, með launin okkar og borgum fyrst húsnæðislánin og rafmagn, síma, net, leikskólann og mat fyrir börnin í grunnskólanum. Þegar það er greitt þá legg ég fyrir pening fyrir mat og bensíni. Þá er kannski eitthvað pínulítið eftir fyrir krakkana en pyngjan er tóm þegar kemur að mér.

Ef ég væri með betra kaup þá myndi ég eyða því í góða skóla, ég sótti um pláss í Ísakskóla fyrir minn yngsta sem er fimm ára og hann var tekin inn en ég þurfti að hætta við, það er svo dýrt, ég átti ekki efni á því. Ég vona bara að börnin mín fái almennilega menntun, dóttir mín er í FG en vinnur líka hluta til með skólanum. Hún er að læra tungumál og ferðamálafræði, ég verð að hjálpa henni við bókakaupin, það eru alltaf nýjar bækur á hverju ári. Ég þarf ekki að telja peningana um mánaðamótin, ég vinn átta tíma á dag, fimm daga vikunnar, í fjórar vikur og þegar kaupið loksins kemur þá er það eins og að ýta á takka, það er allt horfið um leið.“

Clarivelle Rosento starfar í heimaþjónustunni í þjónustuíbúðum aldraðra á Furugrund 1 og er félagi í Eflingu.

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: