- Advertisement -

Fallegt raðhús í Garðabæ

Fallegt raðhús á tveimur hæðum.

Fallegt raðhús á tveimur hæðum með vönduðum innréttingum og fallegum gólfefnum ásamt innbyggðum bílskúr. Í húsinu er stór stofa, borðstofa og eldhús á efri hæð ásamt stórum þaksvölum.

Á neðri hæð eru þrjú svefnherbergi, stórt baðherbergi og gestasnyrting ásamt geymslu og bílskúr. Af neðri hæð er gengið út á stóra afgirta og skjólgóða verönd. Fyrir framan húsið er afgirt verönd. Forstofa er flísalögð, rúmgott forstofuherbergi með parketi.
Stórt parketlagt hjónaherbergi með fataherbergi, úr fataherbergi er gengið út á afgirta verönd. Samkvæmt teikningum er gert ráð fyrir tveimur svefnherbergjum en öðru var breytt í fataherbergi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, stór sturta og hvít innrétting. Vola blöndunartæki.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Á efri hæð er stór stofa með stórum fallegum gluggum. Fallegur hvíttaður askur á gólfum. Rennihurð úr stofu út á stórar þaksvalir sem vísa til suðurs. Granít sólbekkir frá Rein. Innfeld lýsing frá Gira.
Eldhúsið er með fallegri hvítri innréttingu, stór eyja með granít borðplötu. Miele tæki og Elica háfur frá Eirvík. Borðstofa með fallegum stórum gluggum.

Sjá nánar hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: