- Advertisement -

Ferðafólki fjölgar líka fyrir vestan og austan

- upplýsingar Hagstofunnar slá á kenningar um annað.

Tölur Hagstofunnar falla illa að kenningum um að ferðafólki fækki jafnt á Vestfjörðum sem og á Austurlandi. Tölur Hagstofunnar sýna veruleikann frá áramótum og út aprílmánuð. Ferðafólki fjölgar um allt land.

Því fjær sem sem gististaðir eru höfuðborginni fjölgar gistináttum minna. „Þannig var fjölgunin einna minnst á landsvæðum sem eru lengst frá höfuðborgarsvæðinu; Norðurlandi, Austurlandi, Vesturlandi og Vestfjörðum. Fjölgun gistinátta var minnst á Austurlandi, rúm 13% en næstminnst á Norðurlandi eða 23%. Fjölgunin var ívið meiri á Vesturlandi og Vestfjörðum eða tæp 31%. Þessi þróun skýrist að einhverju leyti af því að dvalarlengd ferðamanna hefur verið að styttast á síðustu misserum hér á landi m.a. vegna styrkingar krónunnar sem hefur hækkað dvalarkostnað ferðamanna. Styttri dvalarlengd dregur úr svigrúmi ferðamanna til að ferðast yfir langan veg hér á landi. Þar sem nær allir ferðamenn sem sækja landið heim koma í gegnum Leifsstöð er ljóst að styttri dvalarlengd kemur harðast niður á þeim svæðum sem eru langt frá millilandaflugvellinum. Þetta þýðir einnig að sú styrking sem orðið hefur á krónunni á síðustu misserum og möguleg áframhaldandi styrking til framtíðar mun koma harðar niður á svæðum eins og Austurlandi, Norðurlandi og Vestfjörðum en þeim svæðum sem liggja nær millilandafluginu,“ segir í Hagsjá Landsbanka Íslands.

Tölur Hagstofunnar og frétt Fréttablaðsins tala sitt hvoru málinu. Fækkun segir Fréttablaðið, fjölgun segir Hagstofan.

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: