- Advertisement -

Forsetar ASÍ fóru í Valhöll þar sem Vilhjálmur Birgisson hélt ræðu

„Ég fór einnig yfir hvernig verðtryggingin er eins og ryksugubarki sem sogar allt fá frá heimilum yfir til fjármagnseignenda og enginn segir eitt eða neitt.“

Hinir nýju forsetar ASÍ sóttu fund sjálfstæðismanna um kjarasamingana framundan.

Vilhjálmur Birgisson greinir frá að hann, Drífa Snædal og Kristján Þór’ur Snæbjörnsson, sem eru forseta Alþýðusambandsins, hafi sótt fund í Valhöll, þeirra sjálfstæðismanna. Á fundinum var fjallað um vinnumarkaðurinn og komandi kjarasamningar.

Gefum Vilhjálmi orðið: „Framsögu voru með Halldór Benjamín framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Helga Ingólfsdóttir varaformaður VR og Ásgeir Jónsson forstöðumaður hagfræðisdeildar Háskóla Íslands.

Ég sá mig knúinn til að koma á framfæri okkar kröfum og um hvað komandi kjarasamningar lúta að. Ég taldi t.d. mjög mikilvægt að fundamenn áttuðu sig á þeim hræðilegu kjörum sem verkafólk þarf að búa við og nefndi sem dæmi að lágmarkstaxtar verkafólks á hinum almenna vinnumarkaði séu einungis frá 266 þúsundum króna upp í 300 þúsund sem er langt undir öllum þeim framfærsluviðmiðum sem hið opinbera hefur gefið út.“

Blóðugur leigumarkaður

„Ég sagði að það væri dapurt að heyra sönginn um hinn mikla kaupmátt sem hinir tekjulægstu eiga að hafa notið á liðnum árum og benti mönnum á að þetta væri bara alls ekki rétt. Enda liggur fyrir að leiguvísitalan hefur hækkað frá árinu 2011 um tæp 90% á meðan lægstu launataxtar á hinum almenna vinnumarkaði hafa hækkað um 65%. Hvaða kaupmáttaraukningu er við að tala um hjá fólki sem er á hinum almenna leigumarkaði þar sem leiga hefur hækkað um 90% á meðan laun hafa hækkað frá sama tíma um 65%. Að sjálfsögðu er ekki um neina kaupmáttaraukningu að ræða hjá þessu fólki. Ég taldi líka rétt að minna fundarmenn á að þeir sem væru á hinum blóðuga leigumarkaði væri tekjulægsta fólkið og ég nefndi dæmi af einstæðri móður með 2 börn sem væri að leigja þriggja herbergja íbúð á 285 þúsund á mánuði. Ætlar einhver að reyna að halda því fram að það sé eitthvert góðæri eða kaupmáttaraukning hjá þessari einstæðu móður.“

„Heimilin eru að greiða 66 milljarða meira í vaxtakostnað, en neytendur á Norðurlöndunum á hverju ári.“

Okurvextir og himinhá þjónustugjöld

„Ég fór einnig yfir þá okurvexti, verðtryggingu og þau himinn háu þjónustugjöld sem neytendur þurfa að búa hér við og tók sem dæmi að heimilin og fyrirtæki eru að greiða yfir 3% hærri raunvexti hér á landi miðað við þau lönd sem við viljum bera okkur hvað helst við. Heimilin eru að greiða 66 milljarða meira í vaxtakostnað, en neytendur á Norðurlöndunum á hverju ári.“

Ryksugubarki sem sogar allt frá heimilunum

„Ég fór einnig yfir hvernig verðtryggingin er eins og ryksugubarki sem sogar allt fá frá heimilum yfir til fjármagnseigenda og enginn segir eitt eða neitt. Ég nefndi að bara í síðasta mánuði hefði íslenskum heimilum verið sendur reikningur uppá 10 milljarða vegna þess að neysluvísitalan hefði hækkað um 0,57% á milli mánaða. Já verðtryggðarskuldir heimilanna hækkuðu um 10 milljarða á 31 degi vegna þessa og ég sagði í ræðu minni að þetta væri álíka upphæð og veiðileyfagjöldin nema á útgerðina á heilu ári!“

„Ég sagði einnig að ef stjórnvöld munu ekki koma til móts við okkar kröfur sé ljóst að verkalýðshreyfingin muni láta kné fylgja kviði við að bæta stöðu þeirra sem höllustum fæti standa í íslensku samfélagi!“

Krónurnar tvær

„Ég sagði í ræðu minni einnig að við værum með alla vegna tvær krónur í íslensku hagkerfi verkamannakrónu þar sem öll ábyrgð á efnahagslegum óstöðugleika er varpað á herðar alþýðunnar og heimilanna og síðan séríslenska verðtryggðakrónu auðmanna og fjármagnseigenda sem eru varðir í baka og fyrir öllum efnahagslegum óstöðugleika. Ekki bara að fjármálakerfið krefjist verðtryggingar á fjárskuldbindingum heimilanna heldur heimta þeir einnig að vera með breytilega vexti á verðtryggðumvöxtum.
Í salnum voru nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins og ég bendi orðum mínum til þeirra og bað þá um að hlusta gaumgæfilega sanngjarnar kröfur verkalýðshreyfingarinnar er lúta að stjórnvöldum. Ég sagði einnig að ef stjórnvöld munu ekki koma til móts við okkar kröfur sé ljóst að verkalýðshreyfingin muni láta kné fylgja kviði við að bæta stöðu þeirra sem höllustum fæti standa í íslensku samfélagi!“

750 milljarða hagnaður

„Það er alla vega löngu tímabært að stjórnmálamenn og stjórnvöld taki hagsmuni alþýðunnar og heimilanna fram yfir hagsmuni fjármálaelítunnar. Ég sagði að lokum hver hefði trúað því að 10 árum eftir hrun að þá séu viðskiptabankarnir þrír sem ollu hruninu búnir að skila um 750 milljörðum í hagnað, bankar sem ollu íslenskum almenningi miklum þjáningum.“

Að halda mannlegri reisn

„Ég vona svo innilega að þeir sjálfstæðismenn sem þarna voru hafi skilið það sem ég var að segja en það lýtur að því að við sem samfélag tökum utan um þá sem höllustum fæti standa í íslensku samfélagi þannig að allir geti framfleytt sér frá mánuði til mánaðar og haldið mannlegri reisn, ekki bara sumir!“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: