- Advertisement -

Forsetinn og fálkaorðan

„Vegna umræðu um veitingu hinnar íslensku fálkaorðu til erlendra ríkisborgara er embætti forseta Íslands ljúft að taka fram að um það gilda ýmsar reglur, samningar og hefðir. Þannig gilda t.d. víða í Evrópu sérstakar reglur um gagnkvæmar orðuveitingar í tengslum við opinberar heimsóknir þjóðhöfðingja. Á Íslandi eiga þessar reglur einkum við um opinberar heimsóknir forseta Íslands til hinna norrænu ríkja og opinberar heimsóknir þjóðhöfðingja þeirra til okkar. Við þau tilefni leggja embættismenn í ríki gestgjafans fram tillögu fyrir hönd stjórnvalda þar um einstaklinga sem veita megi orðu gestaríkisins, annað hvort vegna starfa þeirra í þágu samskipta ríkjanna, hlutdeildar í dagskrá heimsóknarinnar eða opinberra starfa í heimalandinu. Jafnframt er lögð fram tillaga af hálfu gestaríkis um einstaklinga sem veita megi orðu gestgjafaríkisins. Rétt er að taka sérstaklega fram að á Íslandi kemur orðunefnd ekki nærri þessu ferli. Forseti Íslands veitir hina íslensku fálkaorðu en við opinberar heimsóknir ytra er hún að jafnaði afhent orðuhafa án þess að forseti sé nærri,“ segir í tilkynningu frá embætti forseta Íslands.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: