- Advertisement -

Fylleríið til flokksráðs Miðflokksins?

Vigdís Hauksdóttir.

„Ég er sammála þessari yfirlýsingu bæjarfulltrúa Miðflokksins í Suðurkjördæmi og hef við þetta að bæta að þetta er óverjandi orðræða á köflum sem ég gagnrýni harðlega.
Þingmenn og þingflokkur verða að bregðast við – en ég ætla ekki að segja þeim fyrir verkum – frekar en að þeir geti sagt mér fyrir verkum,“ skrifar Vigdís Hauksdóttir borgarfulltrúi.

Hún vitnar til þessarar yfirlýsingar bæjarfulltrúa í Suðurkjördæmi.

„Yfirlýsing bæjarfulltrúa Miðflokksins í Suðurkjördæmi

Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi harma þau niðrandi ummæli sem þingmenn Miðflokksins létu falla um samborgara sína og samstarfsfólk þann 20. nóvember síðastliðinn á Klaustur Bar í Reykjavík og náðust á hljóðupptöku.

Við vonum að þingflokkur Miðflokksins komist að ásættanlegri niðurstöðu á fundi sínum í dag fyrir almenning varðandi áframhaldandi þingmennsku þeirra þingmanna sem þarna áttu hlut að máli. Að öðrum kosti óskum við eftir flokksráðsfundi þar sem félagar Miðflokksins taka ákvörðun um framhaldið.

Bæjarfulltrúar Miðflokksins í Suðurkjördæmi

Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir – Grindavík
Margrét Þórarinsdóttir – Reykjanesbæ
Tómas Ellert Tómasson – Svf. Árborg.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: