- Advertisement -

Hætta við sameiningu sjómannafélaga

Ásakanir um óheiðarleika innan Sjómannafélags Íslands um óheiðarleika og falsanir gerðu útslagið.

 Jötunn í Vestmannaeyjum og Sjómannafélag Eyjafjarðar hafa dregið úr samninguviðræðum við Sjómannafélag Íslands, Sjómannafélags Hafnarfjarðar og Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur.

Eyfirðingar skrifa: „Stjórn félagsins kom saman til fundar í gær og var eitt mál á dagskrá fundarins, þ.e. staðan í viðræðum þeirra fimm sjómannafélaga sem verið hafa í gangi um nokkurt skeið. Viðbrögð félagsmanna og áhyggjur okkar stjórnarmanna í Sjómannafélagi Eyjafjarðar um þær alvarlegu ásakanir sem settar hafa verið fram á hendur stjórnendum Sjómannafélags Íslands hefur sett okkur í þá stöðu að óhjákvæmilegt er annað en að bregðast við. Á stjórnarfundinum var samþykkt eftirfarandi yfirlýsing sem undirrituð er af formanni SE og formanni Jötuns um að ekki verði lengra farið í málinu og dragi því þessi félög sig út úr þessum viðræðum.“


Hér neðar er yfirlýsingin undirrituð í heild.

Yfirlýsing frá Sjómannafélagi Eyjafjarðar og Sjómannafélaginu Jötni.

Í fréttum undanfarna daga hafa komið fram mjög alvarlegar ásakanir á hendur stjórnendum Sjómannafélags Íslands um óheiðarlega framkomu og falsanir á fundargerðarbók sjómannafélagsins. Ásakanir þessar hafa komið fram í tengslum við fyrirhugað mótframboð til stjórnar félagsins í tengslum við aðalfund þess sem fram fer á milli jóla og nýárs. Þessar ásakanir telja stjórnendur ofangreindra félaga svo alvarlegar að við því verði að bregðast.

Þar sem ofangreind félög hafa verið í sameiningarviðræðum við Sjómannafélag Íslands, Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur og Sjómannafélag Hafnarfjarðar er það mat stjórnenda þessara félaga að ekki verði lengra farið og draga sig því út úr þessum sameiningarviðræðum félaganna.

Fyrir hönd félaganna:

Konráð Alfreðsson formaður
Sjómannafélags Eyjafjarðar

Þorsteinn Guðmundsson formaður
Sjómannafélagsisn Jötuns

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: