- Advertisement -

Hefur Alþingi hugrekki til að horfa á eigin verk

- Halldóra Mogensen og Birgir Ármannsson töluðu um stöðu samfélagsins

Halldóra Mogensen, þingkona Pírata, var ákveðin í ræðustól á Alþingi í gær. Hún fann að mörgu í samfélaginu. Sagði meðal annars að aðbúnaður aldraðra sé alls ófullnægjandi og dæmi séu um að stofnanir þar sem gamla fólkið sé frelsissvipt, það lyfjað og líður næringarskort.

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, var ekki sammála Halldóru. Hann sagði orð hennar vera fullkomlega úr takti við veruleikann, það er að mála hlutina jafn dökkum litum og hún gerði.

„Mig langar til þess að gera að umræðuefni hér í dag hvað það er sem við viljum í raun sem löggjafar og hvort ekki sé kominn tími til þess að staldra við og skoða hvaða afleiðingar þau lög sem þingið setur hafa á samfélagið. Er alltaf tryggt að lögin séu í samræmi við þá samfélagsgerð sem við viljum stuðla að? Markmið fangelsisvistunar betrun en raunin er refsing vegna skorts á tækifærum innan fangelsisins vegna skorts á fjármagni,“ sagði Halldóra.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Og hún hélt áfram og sagði markmið öldunarþjónustu vera að búa öldruðum áhyggjulaust ævikvöld, en í raun sé aðbúnaður aldraðra alls ófullnægjandi og dæmi séu um að stofnanir, þar sem gamla fólkið er frelsissvipt, það lyfjað og líði næringarskort, vegna skorts á fjármagni.

„Markmið námslána er aðgengi að menntun fyrir alla, en raunin er útilokun fyrir marga vegna skorts á fjármagni.

Markmið samgönguáætlunar eru orðin tóm vegna skorts á fjármagni.“

Sama hvert litið er

„Það er í raun sama hvert litið er, stjórnarflokkarnir stýra umræðunni í þeirri skortsstöðu sem orðin er vegna skattleysis stórfyrirtækja og stefnu stjórnvalda sem tryggir að arðurinn af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar rennur til örfárra útgerðarfyrirtækja í sjávarútvegi og erlendra auðhringja í stóriðjugeiranum, mantran í niðurskurði vegna skorts á fjármagni og markaðsvæðing,“ sagði Halldóra.

„Unga fólkið í landinu getur ekki komið undir sig fótum vegna þess að það getur ekki tryggt sér grundvallarmannréttindi eins og hafa þak yfir höfuðið og aðgang að menntun óháð efnahag. Gamla fólkið býr við skort. Öryrkjar búa við skort. Fólk með auðlæknanlega sjúkdóma er dæmt til vistar á biðlistum. Ríkisstjórnin talar gjarnan um ábyrgð og stöðugleika, en stöðugleikinn virðist felast í óbreyttu ástandi og ábyrgðin einungis gagnvart fjármagnseigendum og stórfyrirtækjum.“

Við erum ekki á réttri leið

„Á hvaða tímapunkti horfumst við í augu við þá staðreynd að við erum ekki á réttri leið. Til þess þarf hugrekki og vilja til að endurhugsa samfélagið frá grunni. Til þess þarf vilja og getu til þess að tala um framtíðina, framtíð barnanna okkar, framtíð auðlindanna, framtíð loftslagsmála, framtíð fjármálakerfisins, og svo má áfram telja. Þá þarf fleiri úrræði og rök en að það séu ekki til peningar og niðurskurður sé eina ráðið. Er nægilegt hugrekki saman komið í þessu húsi til þess að horfast í augu við þetta?“

Þannig endaði Halldóra Mogensen ræðu sína.

Fullkomlega úr takti við veruleikann

Birgir Ármannsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, var ekki sammála Halldóru. Hann sagði, af tilefni ræðu hennar, geta þess; „…að ég tel að Ísland sé á margan hátt á réttri leið. Sú svarta mynd sem hún dró upp af ástandi mála hér á landi er alls ekki réttmæt að mínu mati. Okkur miðar vel áfram á mörgum sviðum. Við erum ekki komin á áfangastað og við vitum að á fjöldamörgum sviðum, m.a. þeim sem hún nefndi sérstaklega í sínu máli, eigum við mörg verkefni óunnin. En það er hins vegar fullkomlega úr takti við veruleikann að mála hlutina jafn dökkum litum og hún gerði í ræðu sinni.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: