- Advertisement -

Höggmyndir eftir konur í Hljómskálagarðinum

Menning Höggmyndagarður til minningar um upphafskonur íslenskrar höggmyndalistar verður opnaður við hátíðlega athöfn í suðvesturhorni Hljómskálagarðsins á kvennadaginn þann 19. júní kl. 19.30. Borgarstjóri vígir garðinn og opinberar nafn hans.

Í garðinum eru höggmyndir eftir sex konur sem voru frumkvöðlar í höggmyndalist hér á landi, þær Gunnfríði Jónsdóttur (1889 – 1968), Nínu Sæmundsson (1892 – 1962), Tove Ólafsson (1909 – 1992), Þorbjörgu Pálsdóttur (1919 – 2009), Ólöfu Pálsdóttur (1920) og Gerði Helgadóttur (1928 – 1975). Verkin sem um ræðir eru: Landnámskonan eftir Gunnfríði, Hafmeyjan eftir Nínu, Maður og kona eftir Tove, Piltur og stúlka eftir Þorbjörgu, Sonur eftir Ólöfu og Skúlptúr eftir Gerði.

Listasafn Reykjavíkur hefur haft listræna stjórn og umsjón með verkefninu en í greinargerð Hafþórs Yngvasonar safnstjóra kemur fram að garðurinn sé minnisvarði um það mikilvæga frumherjastarf sem konurnar unnu á tímum þegar lítill skilningur var á að þær legðu fyrir sig listsköpun. Höggmyndagarður í miðborg Reykjavíkur sé til þess að undirstrika stöðu listkvennanna sem formæðra sameiginlegrar listhefðar allra landsmanna
Höggmyndirnar koma frá opinberum- og einkaaðilum sem styrkja verkefnið. Listasafn Reykjavíkur á þrjár myndir og Listasafn Íslands leggur til tvær myndir. Þá hefur verslunarmiðstöðin Smáralind fært Reykjavíkurborg Hafmeyjuna að gjöf.

Vefsíða verður opnuð samdægurs með upplýsingum og ljósmyndum um listakonurnar og verkin í garðinum í samstarfi við Gjörningaklúbbinn. Nafn vefsíðunnar verður gert opinbert við vígsluna. Þá frumflytur Gjörningaklúbburinn sex gjörninga tileinkaða hverri höggmynd á næstu misserum. Sjöundi og síðasti gjörningurinn verður fluttur þann 19. júní 2015.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Að vígslunni lokinni verður boðið upp á kvöldgöngu í fylgd Auðar Styrkársdóttur, forstöðukonu Kvennasögusafns Íslands, um kvennasöguslóðir í kvosinni..

Dagskrá:
Kl. 19. 30 Borgarstjóri vígir garðinn
Kl. 20. 00 Kvöldganga á kvennasöguslóðir í kvosinni sem hefst í höggmyndagarðinn.

Tónlist: Meðlimir úr kvenblástursbandinu Icelandic Wonderbrass leika fyrir gesti.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: