- Advertisement -

„Hraða útskriftum eins og kostur er“

Páll Matthíasson, forstjóri Landspíttalans, er ekki bjartsýnn á ástandið á spítalanum. „En þegar að meðferð er lokið er afar áríðandi að fólk komist af spítalanum sem allra fyrst, heilsu þeirra og bata vegna.“

Vandræðin eru víða. Láglaunastefna Reykjavíkur gegnur greinilega ekki upp, ekki lengur.

Framundan er annasamt sumar á Landspítala og það liggur fyrir að sumarlokanir munu hafa meiri áhrif á starfsemina þetta sumarið en fyrri sumur, jafnvel þótt færri rúmum verði lokað,“ þannig skrifar Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, til starfsmanna sinna

„Það ræðst annars vegar af því að tímabil fækkunar opinna rúma er lengra að þessu sinni og að þegar hefur verið dregið úr fjölda opinna rúma vegna skorts á hjúkrunarfræðingum. Þetta mun óhjákvæmilega hafa þau áhrif að við munum þurfa að hraða útskriftum eins og kostur er. Afskaplega mikilvægt er að þetta ferli gangi hratt og vel fyrir sig nú þegar raunin er sú að bráðalegurými eru af skornum skammti. Allir sem leggjast inn á bráðalegudeild eru með bráð vandamál sem krefjast úrlausnar. Því þarf að útskrifa fólk eins skjótt og hægt er til að geta tekið á móti nýjum sjúklingum, allan sólarhringinn, allt árið um kring,“ skrifar forstjórinn.

„Þetta gildir sérstaklega um þá sem lokið hafa þeirri meðferð sem Landspítali getur veitt, enda er of löng dvöl á Landspítala síst til bóta, einkum fyrir eldra fólk. Við finnum oft fyrir kvíða aðstandenda sem standa frammi fyrir útskrift ástvinar og telja að spítalinn sé þeim örugg höfn. Það er Landspítali sannarlega þeim ungu jafnt sem öldruðu sem þurfa meðferð við bráðum vandamálum. En þegar að meðferð er lokið er afar áríðandi fólk komist af spítalanum sem allra fyrst, heilsu þeirra og bata vegna. Bráðalegudeild er mikilvægt úrræði fyrir bráð vandamál en áríðandi er að fólk komist síðan sem fyrst í sitt heimaumhverfi með viðeigandi aðstoð.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: