- Advertisement -

Hvalur hf. hefnir sín eftir ósigurinn

Fyrirtækið meinar starfsmönnum sínum að vera félagar í Verkalýðsfélagi Akraness eftir að félagið hafði betur í dómsmáli gegn Hvali hf. Vilhjálmur Birgisson boðar „fulla hörku“.

Verkalýðsfélag Akraness rak dómsmál gegn Hvali hf. og hafði betur. Hvalur þarf að kosta talsvserðu til vegna dómsins. Nú hefur fyrirtækið gripið til aðgerða, það ætlar að hefna sín.

„Þegar starfsmenn komu til fundar með forsvarsmönnum Hvals, var þeim tilkynnt að enginn mætti vera í Verkalýðsfélagi Akraness heldur yrðu allir að vera í Stéttarfélagi Vesturlands þrátt fyrir að starfsstöð Hvals í Hvalfirði sé á félagssvæði Verkalýðsfélags Akraness,“ segir Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA.

„Nú ætlar Kristján Loftsson að reyna að refsa Verkalýðsfélagi Akraness með því að meina starfsmönnum að vera í VLFA vegna þess að Verkalýðsfélag Akraness uppfyllti sínar lagalegu skyldur við að tryggja og varðveita réttindi sinna félagsmanna.“

Munu mæta Hvali hf. af hörku

Lögmaður Verkalýðsfélags Akraness hefru sent forsvarsmönnum Hvals bréf þar sem þessum kolólöglegum aðgerðum er harðlega mótmælt. „Þetta ofbeldi Kristjáns Loftssonar er gróft brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur frá árinu 1938 og andstætt öllum leikreglum á hinum almenna vinnumarkaði. Þetta grófa ofbeldi forsvarsmanna Hvals mun Verkalýðsfélag Akraness mæta af fullri hörku því aðgerðin er siðlaus og lítilmannleg sem er fólgin í að stilla starfsmönnum upp með þeim hætti að ef þeir hafna ekki að vera í Verkalýðsfélagi Akraness munu starfsmenn jafnvel ekki fá starfið,“ segir Vilhjálmur.

„Þurfum ekki svona atvinnurekendur“

„Við þurfum ekki svona atvinnurekendur á íslenskum vinnumarkaði og mun félagið fylgja málinu eftir af fullum þunga og krefja líka að Samtök atvinnulífsins grípi inní þessa ólöglegu og grófu aðgerð hjá Kristjáni Loftsyni,“ segir Vilhjálmur.

„Eitt er víst að Verkalýðsfélag Akraness mun ekki láta svona menn eins og Kristján Loftson reyna að þagga niður og kæfa lögbundið hlutverk stéttarfélagsins sem er að verja réttindi sinna félagsmanna sé verið að brjóta á þeim. Rétt að minna enn og aftur á að VLFA vann þetta gríðarstóra hagsmunamál fyrir sína félagsmenn gegn Hval hf. og því ætlar að Hvalur að reyna að refsa stéttarfélaginu sem stendur sína vakt með þessum hætti.

Hafðu skömm fyrir Kristján Loftson og gleymdu því að þú komist upp með svona lagað, þótt þú sért einn ríkasti einstaklingur landsins þá ertu ekki hafin yfir lög!“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: