- Advertisement -

Kolbrún vill slaka á kröfum

Vill ekki að áfram verði krafa um að þau sem félagslegt húsnæði í Reykjavík hafi átti lögheimili þar síðustu tvö ár. Vill að nóg sé að hafa átt heima á Íslandi.

„Lagt er til að gerðar verði eftirfarandi breytingar á skilyrðum þess að hægt sé að sækja um félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavík. Í stað þess að umsækjandi þurfi að hafa átt lögheimili í Reykjavík síðastliðin tvö ár nægir að hafi átt lögheimili á Íslandi síðastliðin tvö ár,“ segir í tillögu Kolbrúnar Baldursdóttur, borgarfulltrúa Flokks fólksins.

„Þessi breyting á skilyrðum er nauðsynleg fyrir margar sakir. Á meðan fólk bíður eftir félagslegu húsnæði á það oft ekki í önnur hús að venda á biðtímanum í Reykjavík. Sumir eiga þess kost að búa tímabundið í öðru sveitarfélaga á meðan það bíður en til þess að falla ekki útaf biðlistanum leggja það á sig að hírast við óviðunandi húsnæðisaðstæður, fá að liggja inni hjá vinum og ættingjum um tíma eða búa í ósamþykktu húsnæði. Með því að afnema þetta skilyrði getur fólk fundið sér tímabundið húsnæði annars staðar á landinu á meðan það bíður eftir að röðin komi að sér í félagslega íbúðakerfinu í Reykjavík. Þessi breyting opnar fyrir meiri sveigjanleika og möguleika á að fá viðunandi húsnæði á biðtímanum enda þótt um sé að ræða tímabundið. Þessi breyting gerir skilyrðin auk þess mun manneskjulegri en þau eru nú. Þetta skilyrði hefur óþarfa fælingarmátt og enda þótt fólk geti sótt um undanþágu þá veit fólk oft ekki um þann rétt sinn, er jafnvel ekki upplýst um hann.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: