- Advertisement -

Klámkarlinn á Ríkissjónvarpinu

Sanna Magdalena Mörtudóttir.
Stóð af sér klámhögg Einars.

Klámhögg Sjálfstæðisflokksmannsins Einars Þorsteinssonar er sennilega það grófasta í kosningabaráttunni til þess. Ríkisútvarpið skuldar skýringar á framgangi Einars.

Einar ætlaði augljóslega að slá Sönnu Magdalenu Mörtudóttur kalda í sjónvarpumræðunum í gær. Einar vanmat Sönnu mikið, þar sem hún reyndist honum sterkari og klárari á allan hátt. Segja má að Einar hafi steinlegið undan eigin klámhöggi.

Hefði Einar virkilega viljað tala um trúverðugleika flokka hefði hann átt að byrja á eigin flokki. Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og formaður flokksins eru báðir í meistaraflokki afglapa í viðskiptalífinu. Það hefði verið fínn byrjunarreitur.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Fyrir Einari virðist aðeins hafa vakað slá Sönnu út af laginu, þar sem frammistaða hennar vakti athygli allra. Líka Einars sem virðist hafa fyllst ótakmarkaðri heift í hennar garð.

Sanna Magdalena gerði meira en að standa af sér árás hægri mannsins. Hún óx og stækkaði í vörn sinni gegn ódrengilegum dónaskap útsendara Valhallar í Efstaleiti 1.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: