- Advertisement -

Kratar vilja borga Sigríði til að hætta

- segja framgöngu dómsmálaráðherra einkennast af harðneskju og hafa hrundið af söfnun í von um að geta freistað hennar til að láta af emætti.

„Ungir jafnaðarmenn bjóðast til að greiða Sigríði Á. Andersen 1000 evrur fyrir að fara úr embætti dómsmálaráðherra,“ þannig hefst dreifibré Ungra Jafnaðarmanna.

Ekki er að sjá að þetta sé sett fram sem skemmtiefni.

„Sigríður Á. Andersen, dómsmálaráðherra, hefur kynnt drög að reglugerð sem heimilar Útlendingastofnun að borga hælisleitendum fyrir að draga hælisumsókn sína til baka. Upphæðin getur numið allt að 1000 evrum, sem jafngildir 125 þúsund krónum.

Framkoma ráðherrans gagnvart umsækjendum um alþjóðlega vernd hefur einkennst af harðneskju og nú leggur hún fram siðferðilega vafasama reglugerð um að borga fólki fyrir að afsala sér mannréttindum sínum. Segir ráðherrann slíka lausn ódýrari en að veita hjálparþurfi einstaklingum viðunandi aðstoð. Í stað þess að borga fólki í viðkvæmri stöðu fyrir að afsala sér réttindum sínum ættu íslensk stjórnvöld að leita allra leiða til þess að hjálpa því. Okkur ber skylda til þess að bregðast við því ástandi sem ríkir í heiminum í dag og hjálpa sem flestum sem eru á flótta.

Tákn söfnunar gegn dómsmálaráðherra.

Vegna harðneskjulegrar stefnu Sigríðar Á. Andersen gagnvart hælisleitendum og embættisfærslna hennar í Landsréttarmálinu, þar sem hún gerðist brotleg við lög, telja Ungir jafnaðarmenn að ódýrara væri að greiða henni 1000 evrur fyrir að hætta en að hún sitji áfram í embætti dómsmálaráðherra.

Ungir jafnaðarmenn hafa hrundið af stað söfnun og bjóða almenningi að taka þátt með því að leggja upphæð að eigin vali á reikning Ungra jafnaðarmanna. Ákveði Sigríður ekki að þiggja peningana og segja af sér ráðherraembætti munu þeir renna óskiptir til Rauða kross Íslands, sem vinnur ómetanlegt starf í þágu hælisleitenda á Íslandi.“

Síðan fylgir leiðarvísir til þeirra sem vilja leggja söfnuninni lið.

„Hægt er að leggja söfnuninni lið með millifærslu á reikning Ungra jafnaðarmanna. Reikningsnúmer 0301-26-006907, kennitala 690200-3760.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: