- Advertisement -

Lækkum skatta á óþekkta alþjóðlega stórgróðajöfra

„Ekki er verið að bjarga vegakerfinu sem er að molna niður á vakt Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Átakið, sem svo er kallað, næstu fimm árin samsvarar 6% af þeim verkefnum sem blasa við í samgöngumálum, 6%. Það er átakið.“

Karl Gauti Hjaltason. „En það á ekki að lækka skatta á tekjuminnsta fólkið, elli- og örorkulífeyrisþega eða láglaunafólk sem greiðir skatt af tekjum sem enginn getur lifað af.“

„Við höfum verið að ræða fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar næstu fimm árin. Þar eru nokkur atriði sem valdið hafa sérstökum og miklum vonbrigðum og ætla ég að nefna nokkur. Í fyrsta lagi lækkun bankaskattsins. Í öðru lagi áframhaldandi skattlagningu lágtekjufólks. Í þriðja lagi algeran skort á stefnu í samgöngumálum,“ sagði Karl Gauti Hjaltason, þingmaður Flokks fólksins.

„Lækkun bankaskattsins. Verið að lækka skatta á banka um rúm 62%. Ríkið afsalar sér með því tekjum upp á nær 6 milljarða á ári. Á sama tíma er ekkert gert fyrir láglaunafólk og ekkert fyrir vegakerfið. Hverjir eiga bankana? Hverjum kemur þetta til góða? Ríkið á mest af bönkunum, en hverjir eiga það sem eftir stendur? Það eru óþekktir eigendur vogunarsjóða. Verið er að lækka skatta á óþekkta alþjóðlega stórgróðaauðjöfra. En það á ekki að lækka skatta á tekjuminnsta fólkið, elli- og örorkulífeyrisþega eða láglaunafólk sem greiðir skatt af tekjum sem enginn getur lifað af,“ sagði hann.

„Ekki er verið að bjarga vegakerfinu sem er að molna niður á vakt Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Átakið, sem svo er kallað, næstu fimm árin samsvarar 6% af þeim verkefnum sem blasa við í samgöngumálum, 6%. Það er átakið,“ voru lokaorð Karls Gauta.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: