- Advertisement -

Laun hækkað um sex prósent og kaupmáttur um 3,5

Vinnumarkaður Launavísitalan hefur hækkað um sex prósent á einu ári og vísitala kaupmáttar um 3,5 prósent á sama tíma. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar. Sjá nánar hér.

Launavísitala í júlí 2014 er 484,7 stig og hækkaði um 0,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna tólf mánuði hefur launavísitalan hækkað um 5,9%.

Launavísitala 2013-2014
Desember 1988=100

Umreiknað til árshækkunar miðað við hækkun vísitölunnar

Vísitala launa- mánaðar

Breyting frá fyrri mánuði, %

Síðustu 3 mánuði, %

Síðustu 6 mánuði, %

Síðustu 12 mánuði, %

 
2013
Júlí

457,5

-0,1

1,0

8,5

5,5

Ágúst

458,6

0,2

1,9

4,1

5,7

September

462,0

0,7

3,7

3,0

5,9

Október

463,1

0,2

5,0

3,0

6,0

Nóvember

464,2

0,2

5,0

3,4

6,1

Desember

463,8

-0,1

1,6

2,6

6,0

2014
Janúar

468,5

1,0

4,7

4,9

6,7

Febrúar

470,5

0,4

5,5

5,3

4,7

Mars

475,3

1,0

10,3

5,8

4,4

Apríl

478,4

0,7

8,7

6,7

4,8

Maí

480,4

0,4

8,7

7,1

5,2

Júní

482,7

0,5

6,4

8,3

5,4

Júlí

484,7

0,4

5,4

7,0

5,9

Skýring: Launavísitala er reiknuð og birt skv. lögum nr. 89/1989. Vísitalan miðast við regluleg laun í hverjum mánuði og er reiknuð og birt um miðjan næsta mánuð.


launavisitala_juli2014_isKaupmáttur launa hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði

Vísitala kaupmáttar launa í júlí 2014 er 117,8 stig og hækkaði um 0,6% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 3,5%.

Kjarasamningar á tímabilinu
Í launavísitölu júlímánaðar gætir áhrifa kjarasamninga fjármála- og efnahagsráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og Sambands íslenskra sveitarfélaga við nokkur stéttarfélög opinberra starfsmanna sem undirritaðir voru á öðrum ársfjórðungi 2014.

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: