- Advertisement -

Leigjenda gert að flytja samstundis

Var einnig neitað um endurgreiðslu á tryggingarfé

Pólskur maður, sem býr hér á landi, fór með fjölskyldu sína til Póllands í sumarfrí síðasta sumar og kom heim í ágúst. Við heimkomuna var honum tilkynnt að hann þyrfti að flytja úr leiguhúsnæði sínu hið snarasta. Íbúðin sem hann leigði var komin á nauðungaruppboð.

„Fjölskyldan fann strax nýja íbúð og flutti þangað um miðjan ágúst. Eftir að maðurinn hafði skilað af sér húsnæðinu  neitaði leigusalinn að greiða til baka trygginguna sem nam tveggja mánaða leigu,“ segir á vef Neytendasamtakanna.

Þar segir og að maðurinn hafi leitaði því til Leigjendaaðstoðarinnar og eftir að haft var samband við leigusalann bauðst hann til að endurgreiða hálfa trygginguna, eða sem nam mánaðarleigu.

„Því hafnaði skjólstæðingur okkar og bað um frekari aðstoð og var honum því hjálpað við að fylla út kæru til kærunefndar húsamála þar sem þess var krafist að tryggingin yrði endurgreidd að fullu ásamt vöxtum og endurgreiðslu á leigu fyrir seinni helming ágústmánaðar. Kærunefndin féllst á allar kröfur skjólstæðings okkar.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: