- Advertisement -

Lífeyrisþegar fá orlof og desemberuppbót

Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur undirritað reglugerð um eingreiðslur til lífeyrisþega árið 2017. Óskert orlofsuppbót örorkulífeyrisþega sem greiðist í júlí verður 35.415. kr. og desemberuppbótin 53.123 kr. Sambærilegar uppbætur til ellilífeyrisþega verða óskertar 34.500 kr. í júlí og 51.750 kr. í desember.

Fjárhæðir orlofs- og desemberuppbóta til lífeyrisþega eru birtar árlega með reglugerð og greiðslur fara fram 1. júlí og 1. desember ár hvert.

Nú verða eingreiðslur ellilífeyrisþega föst fjárhæð og óháð því hvort viðkomandi býr einn eða með öðrum. Gert er ráð fyrir að fjárhæð eingreiðslunnar lækki um 2% vegna tekna ellilífeyrisþega og verði án frítekjumarks. Eingreiðslur til ellilífeyrisþega verður sérstakur bótaflokkur og verður heildarfjárhæðin óskert 86.250 kr. á þessu ári sem greiðist í tvennu lagi, þ.e. 40% í júlí og 60% í desember.

Ef tekjuforsendur breytast hjá ellilífeyrisþega eftir greiðslu orlofsuppbótar í júli er leiðrétt fyrir því við greiðslu desemberuppbótarinnar til samræmis við það hvort um of- eða vangreiðslu er að ræða.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: