- Advertisement -

Makríllinn er sprettharður

„Makríllinn er sprettharður fiskur og það getur verið mikið fart á honum. Í túrnum eltum við hann í yfir 100 mílur á einungis tveimur sólarhringum. Hann fer svo hratt yfir að þegar fréttist af makríl einhvers staðar er fréttin strax orðin gömul því það er engin vissa fyrir því að finna makríl þegar komið er á staðinn. Við fengum aflann í fimm holum og besta holið gaf 260 tonn og þá var togað í rúman klukkutíma. Fiskurinn er frekar stór og ekki mikil áta í honum. Það bendir allt til þess að makrílgöngurnar séu miklu seinna á ferðinni nú en síðustu ár og því hefur vertíðin ekki farið af stað af miklum krafti. Ég hef hins vegar fulla trú á að menn nái að veiða kvótann,“ sagði Hálfdan Hálfdánarson, skipstjóri á Berki NK við svn.is.

Börkur var þá að landa 800 tonnum af makríl í Neskaupstað.

 

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: