- Advertisement -

Mestur kvótinn er í Reykjavík

Sjávarútvegur Þrjár heimahafnir skera sig úr, hvað varðar úthlutaðan kvóta, eins og undanfarin ár með að skip sem þeim tilheyra fá töluvert mikið meira  úthlutað í þorskígildum talið en þær hafnir sem á eftir koma. Mest fer til skipa með heimahöfn í Reykjavík eða 13,0% af heildinni samanborið við 13,3% í fyrra. Næstmest fer nú til Grindavíkur, eða 10,5% af heildinni sem er um 2,5%-stiga aukning frá fyrra ári og fleytir þeirri höfn fram  úr Vestmannaeyjum sem löngum hefur verið  í öðru sæti hvað  aflamark varðar. Skip með heimahöfn í Vestmannaeyjum ráða nú fyrir 10,5%  úthlutunarinnar, en það felur í sér 0,7%-stiga samdrátt frá fyrra ári.

Hlutfall sem fer til skipa hjá hverri höfn fyrir sig breytist í flestum tilvikum eitthvað og má rekja það til breytinga á þorskígildisstuðlum sem og tilfærslu aflahlutdeilda á milli skipa með ólíka heimahöfn. Vísað er til  yfirlitstöflunnar sem tengill er í hér að neðan.

Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2014/2015. Úthlutunin fer fram á grundvelli aflahlutdeilda að teknu tilliti til frádráttar fyrir jöfnunaraðgerðir með sama hætti og á fyrra fiskveiðiári. Að þessu sinni er úthlutað 376.026 tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 378.828 þorskígildistonnum á sama tíma í fyrra, reiknað í þorskígildum fiskveiðiársins sem nú gengur í garð.Breyting á milli ára er því ekki mikil.  Úthlutun í þorski stendur nánast í stað eða hækkar um 600 tonn og nemur  rúmlega 171.800 tonnum.  Ýsukvótinn dregst enn saman úr 30 þúsund tonnum í fyrra í rúm 24 þúsund tonn í ár.  Nokkur aukning er í úthlutun á ufsa, skötusel, grálúðu og skarkola.  Nokkur samdráttur er í gullkarfa og keilu.  Þá má nefna að humarkvótinn dregst saman um 10%.

Nú er aftur  úthlutað kvóta í úthafsrækju, alls tæpum 4.700 tonnum og í fyrsta sinn er úthlutað kvóta í rækju við Snæfellsnes, um 560 tonnum.  Til  rækju við Snæfellsnes telst rækja í Breiðafirði sunnanverðum, í Kolluál og Jökuldýpi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Vakin er athygli á að síðar á árinu verður úthlutað aflamarki í deilistofnum og ekki er óalgengt að aukið sé við aflamark í  uppsjávarfiski. Þess vegna á heildaraflamark einstakra skipa og hafna og innbyrðishlutfall þeirra eftir að breytast í kjölfar slíkra úthlutana þegar líður á fiskveiðiárið.

Alls fá  578 skip úthlutað aflamarki  í upphafi fiskveiðiárs 2014/2015. Mest aflamark fer til Guðmundar í Nesi, RE 13, rúm 8.553 þorskígildistonn eða tæp 2,3% af úthlutuðum þorskígildum.

Úthlutun eftir fyrirtækjum

Fimmtíu stærstu fyrirtækin fá úthlutað sem nemur um 86% af því aflamarki sem úthlutað er og er það álíka og í fyrra.. Alls fá 459 fyrirtæki eða lögaðilar úthlutað nú eða um 30 aðilum færra en í fyrra. Sé litið til þeirra sem eru með mesta úthlutun fær HB Grandi, líkt og í fyrra, mestu úthlutað til sinna skipa eða 10,7% af heildinni, næst kemur Samherji með 6% og þá Þorbjörn hf. með 5,5%. Þetta er sama röð efstu fyrirtækja og undanfarin ár.

Úthlutun eftir útgerðarflokkum

Smábátar með aflamark og krókaaflamark sem fá úthlutað aflamarki eru töluvert færri í ár en á fyrra ári eða 393 samanborið við 441 áður. Skipum í aflamarkskerfinu fækkar um 24 milli ára og eru nú 258. Athygli vekur að  togurum fækkar um 5 og eru nú 50. Samkvæmt útgerðarflokkun Fiskistofu fá skuttogarar úthlutað tæpum 200 þúsund tonnum af því heildaraflamarki sem úthlutað var að þessu sinni o g skip með aflamark fá tæp 190 þúsund tonn. Smábátar með aflamark og krókaaflamarksbátar fá tæp 46 þúsund tonn. Vakin er athygli á því að krókaaflamarksbátar fá eingöngu úthlutað þorski, ýsu, ufsa, gullkarfa, löngu, keilu og steinbít.  Rétt er að  nefna að við úthlutun nú nú fór að nýju fram  á úthafsrækju eftir nokkurra ára hlé þar sem  hún var utan kvóta og við innleiðingu á kvóta fyrir rækju við Snæfellsnes þá fá tvö skip án veiðileyfa úthlutað kvóta í þeim tegundum vegna  veiðireynslu á undanförnum árum.

Skel- og rækjubætur

Töluvert minna  magni er úthlutað nú í upphafi árs sem  skel- og rækjubótum  en í fyrra eða um 1.775 þorskígildistonnum og fara þau til 42 skipa samanborið við 120 skip á fyrra ári.

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: