- Advertisement -

Miðflokksmenn skjóta fast á Framsókn

Helstu „skyttur“ Miðflokksins skjóta á Framsókn við hverju hreyfingu og öll tækifæri, möguleg og ómöguleg. Framsókn á ekkert svar við skothríð Miðflokksins.

Metnaðarleysi ráðherrans

Nýjast eru föst skot Gunnars Braga á Sigurð Inga, sem enn er formaður Framsóknar, í Mogganum í dag.

„Sam­gönguráðherra hef­ur lagt fram sam­göngu­áætlun og eft­ir all­an belg­ing­inn um „stór­átak“ o.s.frv. fæðist lít­il mús. Enn og aft­ur eru fjár­mun­ir of litl­ir og í engu sam­ræmi við dig­ur­barka­leg­ar yf­ir­lýs­ing­ar ráðherr­ans. Það er sorg­legt að sjá metnaðarleysið er kem­ur að Reykja­nes­braut­inni þar sem áfram er gert ráð fyr­ir því að um­ferðin verði teppt í báða enda í fyr­ir­sjá­an­legri framtíð. Meðan sveit­ar­fé­lög­in við Reykja­nes­braut­ina vaxa og dafna með nýj­um íbú­um bíður mik­il­væg upp­bygg­ing sam­gangna. Það er eðli­leg krafa íbúa og þing­manna kjör­dæm­is­ins að Reykja­nes­braut­in verði kláruð en ekki skilið við hana eins og bútasaumsteppi. Upp úr stend­ur vit­an­lega líka að sam­gönguráðherr­ann er strax bú­inn að skipta um skoðun á veggjöldum og tal­ar nú fyr­ir því að not­end­ur fjár­magni fram­kvæmd­ir.“

Vildarklúbbur Framsóknarmanna

Í gær birti Miðjan frétt um málflutning Þorsteins Sæmundssonar, þar sem hann sagði meðal annars: „En Íbúðalánasjóður er nú orðinn að eins konar rannsóknarsetri og fyrir utan það þá er hann skurnin ein, vegna þess að einhver vildarklúbbur Framsóknarmanna hefur gengið þar um eins og menn í kaupfélagi og afgreitt sig sjálfir og keypt íbúðir af Íbúðalánasjóði undanfarin 10 ár fyrir 57 milljarða kr. Þessar íbúðir hefðu betur verið komnar í leigu fyrir fólk sem hefur lágar tekjur.“

Árangurinn að skila sér

Víst er að sóknarfæri Miðflokksins gegn Framsókn eru mikil. Miðflokkurinn eykur fylgi sitt meðan Framsókn mælist með fádæma lítið fylgi. Þar sem Miðflokkurinn hefur herskáa þingmenn má telja víst að þeir eigi eftir að herða sóknina gegn varnarlausri Framsókn.

Íbúðalánasjóður orðin að sjálfsafgreiðslukaupfélagi Framsóknarflokksins


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: