- Advertisement -

Mogginn og hringlandi krónunnar

Davíð Oddsson ritstjóri Moggans.

Íslenska krónan fær ekki bestu einkunn í leiðara Moggans í dag.

„Marg­ar ástæður eru fyr­ir því að dýrt er að vera á Íslandi. Flug krón­unn­ar er sýnu hærra nú en þegar lágt gengi henn­ar átti þátt í að ferðamanna­straum­ur­inn til Íslands braust fram belj­andi fyr­ir tæp­um ára­tug,“ segir þar og þykir kannski skjóta skökku við. Mogginn hefur farið einna fremst allra í að verja stöðu krónunnar.

Of afleiðingarnar, hverjar eru þær?

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Það er dýrt að búa á Íslandi og telj­ast ekki ný sann­indi. Þetta vita Íslend­ing­ar og hef­ur held­ur ekki farið fram hjá út­lend­ing­um.“

Og tekur þetta ófremdarástand í?

„Það er ekki gott ef sárs­auk­inn í budd­unni er orðinn svo mik­ill að bragðið finnst ekki af matn­um.“

Unnið úr leiðara dagsins í Mogganum.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: