- Advertisement -

Neytendavaktin: Svikahrappar í tölvuheimsóknum

„Varað hefur verið við tölvupóstskeytum sem eru látin líta út fyrir að koma frá þekktum íslenskum fyrirtækjum. Um er að ræða svikapósta þar sem viðtakandi er blekktur til að ýta á tengil, skrá sig inn með lykilorði og notendanafni eða jafnvel að slá inn kreditkortaupplýsingar sínar,“ segir á heimasíðu Neytendasamtakanna, ns.is.

Þar segir að í tilkynningu frá Símanum og Kreditkort er varað við þrjótum sem hafa sent tölvupóst þar sem óskað er eftir persónuupplýsingum í nafni Símans til endurgreiðslu á tvígreiddum reikningi. Sá tölvupóstur kemur ekki frá Símanum heldur er verið að reyna að ná upplýsingum frá grunlausu fólki.

Mikilvægt er að notendur hafi varan á þegar þeim berast grunsamlegir tölvupóstar og gefi alls ekki upp persónu- og/eða kortaupplýsingar nema þeir séu þess fullvissir að skráning sé örugg.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: