- Advertisement -

Okur á Íslandi

Umræðan Ármann Örn Ármannsson, sem um langt árabil var framkvæmdastjóri Ármannsfells, sem var eitt helsta byggingafyrirtæki á Íslandi, skrifar eftirfarandi og birtir í Morgunblaðinu í dag.

„Á Íslandi ríkir fákeppni sem er, held ég, nánast einstæð og enginn segir neitt. Íslendingar láta það yfir sig ganga og heimta í stað- inn hærri laun til að geta greitt okurpungunum. Ég hef bú- ið í Frakklandi undanfarinn rúman áratug og hef mínar viðmið- anir þaðan. Fyrir skömmu var ég á Íslandi, keypti kartöflur á þreföldu verði, tómata á fjórföldu verði og kvefmeðal í apóteki á tíföldu verði miðað við mitt gistiland. Upptalningin gæti verið löng en þar sem samkeppni ríkir ekki smyrja seljendur ofan á verðið upp úr öllu valdi. Enginn stjórnmálaflokkur virðist hafa áhuga á virku verðlagseftirliti.

Ég held að kominn sé tími á að koma hinu gamla verðlagseftirliti aftur á fót. Frjálshyggja undanfarinna áratuga hefur leitt af sér óheyrilegt okur á vörum á Íslandi þar sem samkeppni er ekki til staðar. Verðvitund almennings á Íslandi virðist nánast ekki til, hvernig sem á því nú stendur. Mjólkursamsölunni, sem er einokunarstofnun og yrði að leysa upp ef við værum svo lánsöm að ganga í Evrópubandalagið, líðst að selja allar mjólkurafurðir á langhæsta verði í Evrópu og enginn getur gert neitt. Það er aðeins í fataverslun sem frjáls samkeppni virðist virk enda er fatnaður á Íslandi það ódýr að illskiljanlegt er að fólk sé að fara til útlanda fyrir jól til að kaupa inn. Fólk lætur bjóða sér að kaupa nokkur laufblöð af salati, þeirri ágætu vöru, á 600 krónur meðan hér fæst heill salathaus (u.þ.b. 4 falt magn) á hundrað krón ur. Jafnvel fiskur á Íslandi er mun dýrari en í Frakklandi.

Fákeppni ríkir á flestum sviðum neysluvöru og þar hafa menn að sjálfsögðu verðsamráð til að græða meira. Allir kvarta og segja það dýrt að vera Íslendingur en er ekki ráð að sverfa aðeins að þeim sem selja Íslendingum nauðsynjar á óhóflegu verði? Það gæti verið hagkvæmara að lækka vöruverð með ströngum verð- lagshömlum heldur en að hækka kaup sem leiðir af sér verðbólgu.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: