- Advertisement -

Ólund í forseta Alþingis

Áhugaleysi stóru fjölmiðlanna á sjálftöku þingmanna vekur athygli. Morgunblaðið gerir eina undantekningu og hefur blaðamaður sýnilega hringt í forseta Alþingis, Steingrím J. Sigfússon. Svo er að sjá sem hann hafi ekki verið sérlega upprifinn.

Hann benti á að þingmenn hafi sætt ónæði síðustu daga þar sem þeir hafi verið margspurðir um greiðslur sem þeir fá vegna þingmennskunnar. Morgunblaðið segir forsetann hafa vísað í „háværa umræðu“ um aksturskostnað. Steingrímur þvertók fyrir að hugmyndir um að auka upp­lýs­inga­gjöf um kjör og starfs­kostnaðargreiðslur alþing­is­manna hefðu nokkuð með umræðuna að gera eða ákall fólks og nýrri fjölmiðla um að auðvelda fólki og fjölmiðlum að nálgast upplýsingar um eiginleg kjör þingmanna.

„Nei, þetta var meðal ann­ars rætt í for­sæt­is­nefnd í síðasta mánuði, löngu áður en þessi akst­ursum­ræða kom upp,“ sagði Steingrímur við Moggann.

„Fyr­ir hafa legið í drög­um regl­ur um fyr­ir­komu­lagið og hef­ur í þeim efn­um verið horft til þess hvernig önn­ur þing haga upp­lýs­ing­um um þessi mál. Mark­miðið er að eng­in leynd sé yfir neinu sem varðar al­menn kjör og greiðslur til þing­manna og full­komið gagn­sæi ríki.“

Ætla má að fyrirspurn Björns Leví Gunnarssonar hefur ekki aukið kæti þeirra þingmanna sem vilja frekar geta haldið áfram að maka krókinn, án vitneskju þjóðarinnar. Allar upplýsingar verða hins vegar að koma fram. Nú er að bíða og sjá hver framvindan verður. Verður leyndin aflétt?

-sme


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: