- Advertisement -

Orkuveitan lokar síma Áslaugar

- hún fær ekki að halda starfskjörum sínum út uppsagnatímann sem þó eru samningsbundnir til þriggja mánaða.

„Í dag erum við á sextánda degi frá því að Áslaug Thelma var rekin frá ON. Enn þá hefur hún ekki fengið skýringar á því af hverjum henni var sagt upp,“ skrifar Einar Bárðarson, eiginmaður hennar.

„Framkvæmdastjóranum sem sagði henni upp hefur verið sagt upp, forstjóranum sem reyndi að hylma yfir með honum hefur verið boðið að sitja í fríi tvo mánuði allavega til að byrja með. Framtíð og framfærsla lítillar fjölskyldu sett í fullkomið óvissu á engum réttlætanlegum forsendum. Þar sem Áslaug vann sér til sakar var að tilkynna margoft í yfir 18 mánaða tímabil óviðeigandi framkomu, áreiti og eineltistilburði. En auðvitað „óformlega“ eins og starfsmannastjórinn hefur bent á 🙂 (broskarl til merkis um kaldhæðni).“

Ásetningurinn að ná í Áslaugu

„Nýr forstjóri lét hafa eftir sér í fjölmiðlum fyrir helgi að hún ætlaði að heyra í Áslaugu Thelmu hið fyrsta. Nú er nýr forstjóri kominn til vinnu og haft var eftir henni í fréttum í gærkvöldi og blöðum í morgun að það væri ásetningur hennar að reyna að ná í Áslaugu Thelmu fyrir helgi.

Þú gætir haft áhuga á þessum
„Framkvæmdastjóranum sem sagði henni upp hefur verið sagt upp, forstjóranum sem reyndi að hylma yfir með honum hefur verið boðið að sitja í fríi tvo mánuði allavega til að byrja með.“

Okkur sem þykir vænt um Áslaugu og stöndum með henni í gegnum þetta fíaskó finnst það allavega hafa dottið eitthvað neðar á forgangslistann hjá nýja forstjóranum að heyra frá Áslaugu. En svo því sé haldið til haga þá hefur engin frá ON/OR talað við hana enn þá eftir að þessi atburðarás komst upp á yfirborðið og ON og OR neyddust til að fara að vinna eftir gildum sínum og loforðum.“

Er ekki að búa þetta til

Það er kannski einhverskonar svartur húmor hins nýja forstjóra eða kannski hefur hún bara í raun EKKERT kynnt sér mál Áslaugar … EN EINMITT um helgina LOKAR OR/ON símanum hennar Áslaugar þannig að nú verður spennandi sjá hvort þeim tekst að ná í hana fyrir þann tíma 🙂

Ég sver það ég er ekki að búa þetta til.

Ergo: Hún fékk ekki einu sinni að halda starfskjörum sínum út uppsagnartímann sem þó eru samningsbundnir til 3 mánaða.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: