- Advertisement -

Ríkisstjórnin bakkar með virðisaukann

- komugjöld komi í staðinn. Þetta er samþykkt meirihluta fjárlaganefndar. Leifsstöð verði hugsanlega seld.

Ríkisstjórnin hefur fallið frá, eða réttara sagt, ákveðið að fresta hækkun á virðisaukaskatti á ferðaþjónustuna. Þess í stað er athugað að setja á lendingargjöld. Þetta kom fram í tíufréttum Ríkissjónvarpsins.

Verði hækkun á virðisaukaskatti frestað, er ætlunin að hækkunin komi til framkvæmda á árinu 2019.

Þá er vilji til að skoða af alvöru að selja eignir ríkisins á Keflavíkurflugvelli, þar á meðal Leifsstöð.

„Ég ætla að vekja athygli þingheims á því að við stöndum frammi fyrir að taka hugsanlega ákvarðanir hér á komandi mánuðum eða missirum er varða uppbyggingu Keflavíkurflugvallar og Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og hvernig við ætlum að haga eignarhaldi á þeirri flugstöð, hvort það sé skynsamlegt og eðlilegt að kljúfa það fyrirtæki upp sem sér um það, Isavia, annars vegar í flugleiðsögufyrirtæki, sem er eðlilegt, og síðan fyrirtæki sem annast rekstur flugstöðvarinnar. Þriðji hlutinn gæti verið flugvallarmannvirkin sjálf,“ þetta sagði  Óli Björn Kárason Sjálfstæðisflokki í stuttri ræðu sína á Alþingi, snemma í marsmánuði.

Nú er þetta að verða að alvöru.

„Ég hygg að það sé skynsamlegt að þingheimur fari að hugleiða það hvort við eigum ekki að hleypa einkaaðilum að og þá fyrst og fremst lífeyrissjóðum að eignarhaldi á Flugstöð Leifs Eiríkssonar, dreifa þar með áhættunni og taka þátt í þeirri gríðarlegu uppbyggingu sem fram undan er og er nauðsynleg og gefa lífeyrissjóðum kost á því að fjárfesta og ávaxta fé sinna sjóðfélaga. Það er miklu skynsamlegra og eðlilegra að standa þannig að verki heldur en að ríkisfyrirtæki sé að byggja upp flugstöð. Þannig hafa menn staðið að verki víða erlendis. Það er fremur undantekning en regla að ríkisfyrirtæki annist rekstur flughafna,“ sagði Óli Björn í mars.

Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki nefndi þennan möguleika fyrst í desember 2015.

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: