- Advertisement -

Róbert Guðfinnsson dregur saman seglin

- segir aðrar geta tekið við. „Ég hef orðið var við áhyggjur af því hvað starfsemi á okkar vegum sé orðin fyrirferðamikil í litlu samfélagi,“ segir Róbert. Skilar inn lóðum og hættir við nýbyggingar.

Selvík ehf., sem er félag í eigu Róberts Guðfinnssonar á Siglufirði, fækkar starfsfólki. Þetta kemur fram á vefnum trolli.is.

Á trolli.is segir að Selvík ehf. og skyld félög hafi á undanförnum árum verið í miklum og kostnaðarsömum framkvæmdum á Siglufirði. Meðal þess sem mest hefur borið á upp á síðkastið má nefna lúxus hótelið Sigló hótel og nýjan stórglæsilegan 9 holu golfvöll í Hólsdal, fyrir utan Rauðku húsin sem fyrir löngu eru orðin vel þekkt kennileiti á Siglufirði, svo eitthvað sé nefnt.

Trölli.is náði tali af Róberti, þar sem hann var staddur á viðskiptaferðalagi erlendis, og spurði hvort að þetta þýddi breytingar á stefnu félaga á vegum hans.

„Á síðustu tólf árum höfum við staðið að viðamiklum fjárfestingum á Siglufirði. Það hefur verið fjárfest fyrir allmarga milljarða í uppbyggingu í samfélaginu. Við lítum svo á að nú sé tími til að hægja á og vinna úr því sem komið er. Ég hef orðið var við áhyggjur af því hvað starfsemi á okkar vegum sé orðin fyrirferðamikil í litlu samfélagi. Með því að við hægjum á þá hljóta að opnast tækifæri fyrir aðra að taka við boltanum og gera betur,“ sagði Róbert í stuttu spjalli, þ.e. við trolli.is.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Á vefnum kemur einnig fram að félag í eigu Róberts hafi skilað inn nokkrum byggingarlóðum sem félagið hafði áður fengið.

„Á síðustu tólf árum höfum við staðið að viðamiklum fjárfestingum á Siglufirði. Það hefur verið fjárfest fyrir allmarga milljarða í uppbyggingu í samfélaginu.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: