- Advertisement -

Rod Summers og „The Hjalteyri Scales“

Menning Listamaðurinn Rod Summers  bjó til  verkið  „The Hjalteyri Scales“ sérstaklega með verksmiðjuna á Hjalteyri í huga.  Þetta er lesinn texti og hljóðinnsetning. Um verkið segir hann:

rodljósmfréttatik2Casting the mesh into uncharted waters can result in an unexpected catch. When Loki broadcast his sperm into Angrboða we may be religiously sure he didn’t expect to net a ravenous wolf, a writhing serpent and sheer hell. These days scientists, bolstered by the support of paper reputations, willingly inform that mobility instigated global warming has caused fish shoal disappearance but I maintain (in this work at least) that the real cause of fishy absenteeism is the result of container ship noise pollution, the European common agriculture policy and speculative chocolate. The Hjalteyri Scales is a 4 channel audio work which seeks to bring a cubist balance into the remotest corners of places of abandoned employment.

Frumflutningurinn á verkinu þann 5 júli verður að nokkru leiti lifandi gjörningur eða audiodrama með leikendum.  Rod Summers mun líka sýna vídeó og prentuð verk í verksmiðjunni .

Rod Summers er fæddur á Englandi en býr og starfar í Maastricht,  Hollandi. Hann hefur talsvert unnið með íslenskum listamönnum og kemur oft til Íslands, hann dvelur þá gjarnan  á Ytra Lóni á Langanesi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sýningin verður opnuð fimmtudaginn 5. júlí 2014, kl. 15:00 með frumflutningi á verkinu The Hjalteyri Scales í Verksmiðjunni á Hjalteyri.

Koma listamannsins og sýningin eru styrkt af, Menningarráði Eyþings, Ásprenti og  Myndlistarsjóði,  Bakhjarlar Verksmiðjunnar á Hjalteyri eru CCP­games, Bústólpi og Hörgársveit.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: