- Advertisement -

Samningar eða breytt kvótakerfi

- þingkona Framsóknar segir mikla hagsmuni undir vegna hótanna HB Granda um að hætta vinnslu á Akranesi

Elsa Lára Arnardóttir.

Elsa Lára Arnardóttir, þingkona Framsóknarflokksins á Akurnesingur, segir blasa við að endurskoða verði kvótakerfið fari svo að HB Grandi hætti vinnslu á Akranesi.

„Hér er á ferðinni gríðarlegt hagsmunamál sem við verðum að finna lausn á svo eitt hundrað manns eigi ekki á hættu að missa vinnuna. Ef af því yrði gæti það haft áhrif á lífsviðurværi þessara einstaklinga, á útsvarstekjur bæjarins og þjónustu hans. Ef af yrði hefði aðgerð HB Granda margfeldisáhrif á bæjarfélagið Akranes.“

Sveitarfélög fái forkaupsrétt

Þú gætir haft áhuga á þessum

Elsu Láru er ekki skemmt. „Ef viðræður bæjarstjórnar Akraness og Faxaflóahafna við kvótahæsta fyrirtæki landsins skila ekki árangri tel ég blasa við að endurskoða þurfi það kvótakerfi sem við búum við í dag, skoða hvort hægt sé með skýrari hætti að tengja kvóta við byggðir eða auðvelda sveitarfélögum að nýta sér forkaupsrétt í þeim kvóta sem fyrir er svo ákvörðun sem þessi ógni ekki atvinnuöryggi fjölda einstaklinga og þar með í einhverjum tilvikum byggðafestu samfélaga.“

Ekki vantað hagnaðinn

„Við viljum auðvitað að sjávarútvegsfyrirtæki skili hagnaði,“ sagði Elsa Lára. „Það hefur HB Grandi svo sannarlega gert. Það er mikilvægt upp á framþróun í greininni. En gerum okkur grein fyrir að frá árinu 2008 hefur HB Grandi hagnast um 40 milljarða. Ef svona stór og glæsileg fyrirtæki í sjávarútvegi vilja hafa sátt um greinina þurfa þau að vera tilbúin til að taka örlitlar dýfur þegar illa árar því að þau hafa fengið svigrúm í afar góðu árferði,“ sagði hún.

„Því miður er mál HB Granda ekki það eina sem komið hefur upp en hér er um að ræða kvótahæsta fyrirtæki landsins sem ætlar hugsanlega að grípa til aðgerða og það er óásættanlegt.“

Áður hefur komið fram hér á Miðjunni að Akurnesingar sættu sjálfir gagnrýni þegar þeir fluttu alla vinnslu frá Sandgerði eftir sameiningu Haraldar Böðvarssonar og Miðness í Sandgerði.

Sjá hér.

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: