- Advertisement -

Segir Ásmund segja ósatt um fundarsókn

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, sem er upphafsmaður þeirrar umræðu sem nú fer hvað hæst hefur skrifað Ásmundi Friðrikssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, opið bréf þar sem Björn Leví leiðréttir það sem hann segir Ásmund hafa farið rangt með í Kastljósinu í kvöld.

„Hæ Ásmundur, ég tók eftir því að þú sagðir ýmislegt mjög áhugavert í þessu Kastljós viðtali sem þú varst í. Þar á meðal var einhver athugasemd um mætingu og að þú værir stoltur af því að vera í 2 – 3. sæti í mætingu.

Nú vill svo heppilega til að ég hef fylgst dálítið með þessari nefndarmætingu og get upplýst þig að á 143. þingi þá varstu í 38. sæti með 79% mætingu – misstir af 21 nenfdarfundi þar sem þú varst aðalmaður.
Á 144. þingi þá varstu í 24. sæti með 88% mætingu – misstir af 26 nefndarfundum þar sem þú varst aðalmaður.
Á 145. þingi þá varstu í 25. sæti með 83% mætingu – misstir af 36 nefndarfundum þar sem þú varst aðalmaður.
Á 146. þingi þá varstu í 30. sæti með 90% mætingu – misstir af 7 nefndarfundum þar sem þú varst aðalmaður.

Nú virkar það svo að sumir mæta í fleiri nefndir en þeir eru aðalmenn í, mæta semsagt á fleiri fundi en þeim er ætlað. Þess vegna er hægt að ná meira en 100% mætingu og þannig voru Haraldur Einarsson, Sigríður Á. Andersen, Brynhildur Pétursdóttir og Þórunn Egilsdóttir með bestu mætinguna á 143. – 146. þingi.

Þannig að nei, þú varst ekki í 2. – 3. sæti. Þú varst langt frá því þannig að ef þú varst stoltur af þeim áfanga, hvað finnst þér um réttu tölurnar?

(áhugasamir geta keyrt forritið sem taldi þetta sjálfir til þess að votta að rétt sé að málum staðið: https://github.com/bjornle…/5thpower/…/master/nefndarmaeting)

Aðferðafræðin er svona.
1. Tel alla nefndarfundi sem þingmaður mætir á (ekki bara þá nefndarfundi sem þingmaður er aðalmaður í)
2. Tel alla nefndarfundi sem þingmaður er aðalmaður í
3. Tel alla nefndarfundi sem þingmaður er aðalmaður í en mætir ekki
4. Reikna 1./2. til þess að fá mætingarhlutfall.

Ég er búinn að fara ansi vel yfir þessa aðferðafræði og tel hana vera rétta leið til þess að skoða mætingu þingmanna í nefndir vegna þess að það verður líka að taka tillit til nefndarfunda sem þingmenn mæta á sem áheyrnarfulltrúar. Deilingartalan verður að vera allir nefndarfundir sem þingmaður er aðalmaður í vegna þess að þar er skyldumætingin en ef þingmaður þarf til dæmis að mæta í aðra nefnd á sama tíma þá, þó viðkomandi fái skróp í aðalnefndinni, þá telur mætingin í hinni nefndinni í mætingarhlutfalli.

… en hvað veit ég. Ég er bara einhver höfuðborgarrotta.“

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: