- Advertisement -

Segir stjórnlausan Björn Leví kosta mikið

Forsætisráðherrann fyrrverandi, Davíð Oddsson, er ekki ýkja hrifinn af Birni Leví Gunnarssyni, þingmanni Pírata og hversu mikið aðhald hann veitir með fyrirspurnum sínum á þingi.

„Er ekki brýnt að Björn Leví spyrji að því hver kostnaður­inn er við að svara fyr­ir­spurn­um hans?“ Þannig skrifar Davíð í Staksteina dagsins í dag. Einsog við vitum var það vegna fyrirspurna Björns sem þjóðin fékk að vita um aksturspeninga þingmanna. Sýnilegt er það heillaði ekki alla.

Davíð er þó þessarar skoðunar, sem og Björn Leví Gunnarsson: „Þing­menn hafa ýms­ar leiðir til að rækja skyld­ur sín­ar við kjós­end­ur. Eitt af því sem þing­menn geta gert er að spyrja ráðherra um eitt og annað sem máli skipt­ir og veita með því aðhald eða draga fram mik­il­væg­ar upp­lýs­ing­ar sem erfitt er að nálg­ast með öðrum hætti.“

„En það er með þetta eins og flest annað að það er hægt að mis­nota,“ skrifar ritstjórinn Davíð í beinu framhaldi. Þar fór það.

Davíð segir einnig að nú sitji fjöldi embættismanna til að svara „mis­jafn­lega þarf­laus­um fyr­ir­spurn­um Björns Levís Gunn­ars­son­ar.“

Það fer eflaust ekki eftir smekk hvað hverju og einu okkar þykir um gagnsemi spurninga Björns Leví. Það fer örugglega frekar eftir hagsmunum, hvað ber að þagga niður og hvað ekki.

-sme

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: