- Advertisement -

Sekta smálánafyrirtæki um 20 þúsund

SmáaurarSAMFÉLAG „Neytendastofa hefur tekið ákvörðun um að Neytendalán ehf., sem rekur smálánafyrirtækin 1909, Múla og Hraðpeninga, eigi að greiða dagsektir að fjárhæð 20.000 kr. á dag þar til félagið bætir úr upplýsingagjöf á vefsíðum sínum.“

Þetta er ákvörðun Neytendastofu. Á heimasíðu stofunnar segir einnig: „Samkvæmt lögum ber fyrirtækjum að veita upplýsingar um sig á vefsíðum sínum þannig að neytendur eigi auðvelt með að átta sig á því hver stendur að baki síðunni. Þetta eru upplýsingar eins og nafn, heimilisfang, kennitala og virðisaukaskattnúmer. Þar sem þessar upplýsingar er ekki að finna með fullnægjandi hætti á vefsíðum 1909, Múla og Hraðpeninga og Neytendalán hefur ekki orðið við kröfu Neytendastofu um að bæta upplýsingagjöf sína þurfa þau nú að greiða dagsektir þar til úr þessu verður bætt.“

Sjá nánar hér.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: