- Advertisement -

Sjálfstæðismenn út fyrir þægindarammann

- Sjálfstæðismenn munu axla sína ábyrð af festu og heiðarleika, er mat Jóns Gunnarssonar.

Stjórnmál „Ríkisstjórnarsamstarfið hefur gengið ágætlega. Eins og gengur í samsteypurstjórnum þarf að ná málamiðlunum og þannig höfum við Sjálfstæðismenn á þingi farið út fyrir þægindarammann í nokkrum málum sem samstarfsflokkar okkar hafa lagt áherslu á,“ skrifar Jón Gunnarsson samgönguráðherra.

„Allt í þágu þess að viðhalda stöðugleika í landinu þar sem mikilvægt er að ekki sé pólitísk óvissa. Okkur Alþingismönnum er lagðar ríkar ábyrgðarskyldur á herðar og við Sjálfstæðismenn höfum ekki vikist undan þeirra ábyrgð. Það er mikið ábyrgðarleysi að rjúfa þing og boða til kosninga við þær krefjandi aðstæður sem nú eru í okkar samfélagi,“ skrifar hann.

„Fjárlög eru til afgreiðslu í þinginu, mjög mikilvægir kjarasamningar eru á dagskrá, málefni sauðfjárbænda í miklu uppnámi, miklir erfiðleikar hjá mörgum útgerðarfyrirtækjum, uppbygging atvinnulífs víða á landsbyggðinni í tengslum við laxeldi í óvissu og svo má lengi telja. Við þessar aðstæður, af litlu tilefni, ákveða samstarfsflokkar okkar í ríkisstjórn að hlaupast undan ábyrgð. Ég hef áhyggjur af því hversu léttvægt það er fyrir þetta fólk að hlaupast undan ábyrgð sinni. Nú hefst kosningabarátta með tilheyrandi kostnaði sem eflaust hleypur á milljörðum króna ef allt er talið, það er illa farið með sameiginlegt fjármagn okkar. Ég hef fundað með Sjálfstæðismönnum í mínu kjördæmi um helgina og heyrt í fjölda félaga okkar um allt land. Sjálfstæðismenn munu axla sína ábyrð af festu og heiðarleika. Um allt land eru félagar okkar strax farin að undirbúa vinnuna, sterk grasrót sem af hugsjón hliðrar til í sínum daglegu verkum til að geta lagt hönd á plóg. Ég hlakka til kosningabaráttunnar með þessari sterku sveit kvenna og manna. Ég er sannfærður um að Sjálfstæðisflokkurinn verður enn og aftur sú kjölfesta í íslenskri pólitík sem nauðsynleg er fyrir land og þjóð.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: