- Advertisement -

Skálatún er nánast gjaldþrota

Una María: Það er hins vegar svo að sá þjónustusamningur sem Mosfellsbær hefur greitt eftir og hefur verið ógildur í fjögur ár hefur hvorki fylgt verðlagsþróun né launaþróun í landinu.

„Skálatún, heimili fólks með þroskahömlun, er nánast gjaldþrota. Í Skálatúni njóta nú þjónustu um 40 einstaklingar en heimilið hefur verið án samnings við bæjaryfirvöld í Mosfellsbæ síðan í lok árs 2014,“ sagði Una María Óskarsdóttir Miðflokki á Alþingi í dag.

„Mosfellsbær greiðir eftir úreltum og ógiltum samningi en Skálatún hefur ítrekað óskað eftir nýjum úrbótasamningi sem fylgi verðlagi, launaþróun í landinu, sem og uppfærðu SIS-mati. Samkvæmt lögum skal tryggja fötluðu fólki ákveðin gæði og þjónustu af hálfu hins opinbera og bera sveitarfélög ábyrgð á því að fatlað fólk fái þá þjónustu og þau eiga að greiða kostnaðinn,“ sagði hún.

„Nýr samningur við Skálatún hefur ekki verið gerður og hefur Skálatún gengið svo á sjálfsaflafé sitt og varasjóð að hann er næstum uppurinn og heimilið að fara í þrot. Það er athyglisvert að greiðslur úr jöfnunarsjóði til Mosfellsbæjar eru verðtryggðar. Það er hins vegar svo að sá þjónustusamningur sem Mosfellsbær hefur greitt eftir og hefur verið ógildur í fjögur ár hefur hvorki fylgt verðlagsþróun né launaþróun í landinu. Mér finnst áhyggjuefni að svo virðist sem ekkert eftirlit sé með því fjármagni sem ríkisvaldið úthlutar og það vegna lögbundinna verkefna, hér málefna fatlaðra. Eftirlit ætti að mínu mati bæði að snúa að því að samningar séu gerðir og að því að fjármagnið skili sér til þeirra málaflokka sem um ræðir.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: