- Advertisement -

Sósíalistaflokkurinn sigurvegari í kosningunum

Gunnar Smári Egilsson.

Sósíalistaflokkurinn fékk 6,4% atkvæða í Reykjavík og einn borgarfulltrúa. Sanna Magdalena Mörtudóttir var kosin í borgarstjórn. Annar maður á listanum, Daníel Örn Arnarsson náði ekki kjöri, var þriðji maður inn í borgarstjórn. Sósíalista vantaði um 778 atkvæði til að Daníel myndi fella áttunda mann Sjálfstæðismanna.

Sanna er yngsti fulltrúinn sem kjörinn hefur verið í borgarstjórn, slær met Davíðs Oddssonar frá 1974.

Sósíalistar fengu meira en tvöfalt meira fylgi en allir nýju flokkarnir til samans. Flokkurinn fékk fleiri atkvæði en fjórir þingflokkar; Framsókn, Flokkur fólksins, VG og Miðflokkurinn. Og varð fimmti atkvæðamesti flokkurinn í Reykjavík á eftir Sjálfstæðisflokki, Samfylkingu, Viðreisn og Pírötum.

Ef skoðuð er breytingin frá 2014 þá óx Viðreisn mest eða um 8,2 prósentustig, þá sósíalistar um 6,4, Miðflokkur um 6,1, Sjálfstæðisflokkur um 5,1, Flokkur fólksins um 4,3 og Píratar um 1,8 prósentustig. Framsókn tapar mestu, 7,5 prósentustigum, Samfylkingin 6,0, VG 3,7 og Alþýðufylkingin 0,1.

Af þeim flokkum sem náðu kjöri var Sósíalistaflokkurinn eini flokkurinn sem ekki er á þingi. Aðrir nýir flokkar í borgarstjórn eru ýmist klofningsframboð úr eldri flokkum eða voru með í framboði fólk sem hafði setið á þingi eða í borgarstjórn fyrir aðra flokka.

-gse

 


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: