- Advertisement -

Spiritualized Acoustic Mainline

Hljómsveitin Swans varð að afbóka sig á síðustu stundu vegna veikinda, en nú hefur verið tilkynnt um hvaða sveit það er sem kemur til með að fylla í skarðið fyrir hljómsveitina annað kvöld á hátíðinni: Spiritualized Acoustic Mainline.

Hljómsveitina Spiritualized þarf vart að kynna, en Spiritualized Acoustic Mainline samanstendur af forsprakka Spiritualized, J Spaceman, ásamt gítarleikara sveitarinnar, Tony Goster auk Amiinu á strengjum og íslenskum söngvurum.

Hljómsveitin kemur fram í Andrews Theatre annað kvöld kl 21.45 og breytist því dagskráin örlítið – finnið nýja dagskrá í viðhengi.

Auk heildardagskrár tónleika á hátíðinni, auk kvikmynda og bókalista á vegum Portishead og HAM, var nýlega tilkynnt um dagskrá yfir aðrar uppákomur á hátíðardögunum, en þar á meðal er bókabingó, pöbbkviss, fótboltamót og leiðsögn um hátíðarsvæðið.
Eins verður af nógu að taka af plötusnúðum, en heildardagskrá þeirra má sjá að neðan;

Fimmtudagur:
DJ Stuart Braithwaite (Mogwai)
DJ Jason Spaceman (Spiritualized)
DJ Andy Hung (Fuck Buttons)
DJ Tim Poulton (ATP)

Föstudagur:
DJ Einar Örn (Ghostigital)
DJ Andrew Ellis
DJ óli Dóri
DJ Caleb Braatan

Laugardagur:
DJ Benson Is Fantastic
DJ Declan Allen (Fuck Buttons)
DJ Ben Power (Fuck Buttons)
DJ Barry Hogan (ATP)


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: