- Advertisement -

Stony á hvítatjaldið með Terrence Howard

Stony, öðru nafni Þorsteinn Sindri Baldvinsson gerir það gott í Hollywood

Stony hefur landað aukahlutverki í myndinni Life in a Year þar sem Terrence Howard, Cara Delevinge og Jaden Smith fara með aðalhlutverk.

Terrence mun leika faðir Daryn (Jaden) sem fellur fyrir Isabell (Cara) sem er greind með krabbamein og á aðeins 12 mánuði eftir ólifað.  Stony leikur besta vin Daryn, sem samkjaftar út í eitt og hefur brennandi áhuga á stelpum.

Stony skaust fram í sviðsljósið aðeins 19 ára gamall með Pepsi, Stony, fer með aðalhlutverkið í auglýsingunni og sést þar með Lionel Messi og fleiri fótboltastjörnum.

Hann hefur leikið í bíómyndum á borð við „The Standoff“ og „Hope Springs Eternal“ og einnig í sjónvarpi, „Casual“ og nýjast frá Nickelodeon „Hunter Street“