- Advertisement -

Sýningarlok nálgast hjá Kristínu

Menning Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýningu Kristínar Gunnlaugsdóttur í Flóru en henni lýkur sunnudaginn 17. ágúst 2014.

KGKristín er fædd á Akureyri og stundaði nám við Myndlistaskólann á Akureyri, MHÍ í Reykjavík og Accademia delle Belle Arti í Florence á Ítalíu. Hún er ein af okkar fremstu myndlistarmönnum og einkasýning hennar í Listasafni Íslands á síðasta ári hlaut verðskuldaða athygli. Fyrir þá sýningu fékk Kristín menningarverðlaun DV fyrr á þessu ári. Á sýningunni í Flóru eru fimm verk af þeirri sýningu ásamt nýjum teikningum.

Í bókinni Sköpunarverk sem kom út í tilefni sýningarinnar í Listasafni Íslands skrifar Halldór Björn Runólfsson:

„Styrkur Kristínar sem myndlistarmanns er endurnýjunarkrafturinn, hversu rækilega hún er tilbúin að taka sjálfa sig í gegn og koma þannig sér og öðrum á óvart án þess að slá af þeirri kröfu að nota sama efniviðinn og sömu aðferðirnar og áður; fást með öðrum orðum við þá tegund myndgerðar sem á rætur að rekja til kvennadyngjunnar og klausturlifnaðarins á miðöldum. Ekkert er eins djarft og afgerandi og það að brjóta gegn bannhelgi þessara luktu verkstæða þaðan sem ekkert kom sem ekki naut fullkominnar handleiðslu og blessunar andlegra eftirlitsafla, þeirra sjálfskipuðu siðavarða sem enn vaka yfir stórum hluta kvenna þessa heims, af því að þær eru svo útsettar fyrir óheppilegum refilstigum tilverunnar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Kristín Gunnlaugsdóttir er með öðrum orðum ein þeirra örfáu listamanna okkar sem tilbúnir eru að hafa endaskipti á sjálfu sér svo þeir megi hitta okkur varnarlausa þegar minnst varir og við þörfnumst þess sem mest að vera slegin út af laginu.“

 


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: